Ný reglugerð um takmarkanir á samkomum
- Nánar
- Skrifað þann Fimmtudagur, desember 23 2021 08:50
- Skrifað af Sonja
Ný reglugerð tekur gildi þann 23. desember (isi.is)
Ný reglugerð tekur gildi þann 23. desember (isi.is)
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir er fædd 1989 og hefur verið í hestamannafélaginu Herði alla tíð.
Árið 2021 var mjög gott hjá henni og átti hún góðu gengi að fagna á bæði keppnis- og kynbótabrautinni. Hún á sæti í landsliði Íslands í hestaíþróttum og var í toppsætunum á öllum þeim mótum sem hún keppti á 2021. Hún var auk þess tilnefnd til kynbóta-, íþróttaknapa og knapa ársins á uppskeruhátíð landssambands hestamanna.
Aðalheiður sýndi 30 hross í 1. Verðlaun á árinu og á meðal þeirra var hæst dæmda 6 vetra hryssa ársins 2021.
Benedikt Ólafsson er 18 ára gamall og stoltur Harðafélagi frá unga aldri.
Hann varð á Íslandsmóti 2021 sem haldið var á Hólum í Hjaltadal íslandsmeistari í gæðingaskeiði og var einnig á verðlaunapalli í fjórgangi, tölti og slaktaumatölti á því móti. Benedikt vann einnig gæðingaskeiðið á Reykjavíkurmeistaramótinu og var þar að auki á verðlaunapalli í fjórgangi, tölti og slaktaumatölti. Auk þess vann hann til verðlauna á öllum öðrum mótum sem hann tók þátt í árið 2021. Hann valinn í U-21 landsliðs hóp Íslands í hestaíþróttum nýlega og var jafnframt tilnefndur sem efnilegasti knapi ársins á uppskeruhátíð landssambands hestamanna.
Benedikt eyðir öllum frítíma í hesthúsinu, þar líður honum best, hann sækir reiðkennslu í hverri viku.
Kæru Harðarfélagar.
Við höldum í hefðir og á gamlársdag verður að venju farið ríðandi til þeirra sæmdarhjóna Nonna og Haddýjar í Varmadal. Lagt verður af stað úr Naflanum kl.12.00. Léttar veitingar verða á staðnum.
Gætt verður ítrustu sóttvarna og miðað við að samkomutakmarkanir verði ekki hertar.
Kveðja
Stjórnin.