Skynjun og atferli - Hugrakkir hestar - helgarnámskeið

Skynjun og atferli - Hugrakkir hestar
Spennandi helgarnámskeið í Herði í janúar
 
Skráninginn opnar á laugardag næstkomandi 11.12.21 í
 
Helgina 21. -23.janúar verður helgarnámskeið sem fjallar um skynjun og atferli hestsins.
Reiðhöllin verður fyllt af allskyns áskorunum sem knapar fá dygga hjálp við að leysa með hesti sínum og um leið aukna færni og kunnáttu við þjálfun og samskipti við hestinn. Námskeiðið byggist á verklegri og bóklegri kennslu um læriatferli hestsins, skynjun og viðbrögð. Farið verður í aðferðafræði við að venja hestinn við áreiti, td umhverfisáreiti og alls kyns þrautir verða leystar bæði við hendi og á baki, líkamstjáningu og hegðun knapa/þjálfara í hinum ýmsu aðstæðum.
Bóklegur tími verður á föstudegi og verklegir tímar skiptast í tvo tíma á laugardegi og tvo á sunnudegi - lokatími á sunnudegi er að leysa ”þrautabraut” þar sem samskipti knapa og hests verða sett í smá próf undir álagi. Markmið námskeiðsins er að bæta skilning knapa á eðli og atferli hestsins, bæta skilning hests og knapa á ábendingum og samskipti knapa við hestinn sinn og auka öryggi þeirra í því umhverfi sem hestur og knapi upplifa saman.
 
Kennari er Hinrik Þór Sigurðsson
Hinni hefur kennt hjá okkur áður og hefur svo sannarlega verið að slá í gegn ! Má nefna að hann er tilnefndur núna sem reiðkennari ársins 2021 hjá LH!
 
Miðað er við 10-12 nemendur á námskeiðinu (minnst 8 manns)
Verð 35.000 kr.
 
Skráninginn opnar á laugardag næstkomandi 11.12.21 í
 
 

  Knapamerki 4 verklegt - Skráninginn hafinn

Knapamerki 4 - verklegt
ATH: Skráning fer fram í gegnum email
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Fullt nafn og kennitala
 
- verklegur hluti (bóklegt er sérnámskeið sem alltaf kennt er um haustið)
- Knapinn öðlast vald og þekkingu á eftirfarandi þáttum:
- Mjög gott vald á lóðréttri og stígandi ásetu og gott jafnvægi á baki hestsins
- Hafa nákvæmt og næmt taumhald
- Geta riðið réttan krossgang til beggja hliða í góðu jafnvægi
- Hafa gott vald á baugavinnu og reiðleiðum á vellinum á feti, tölti/brokki og stökki
- Geta riðið gangskiptingar markvisst og af nákvæmni
- Geta látið hestinn stöðva, bíða eftir ábendingu frá knapanum og fara rétt af stað í góðu jafnvægi
- Hestur og knapi séu spennulausir, í andlegu og líkamlegu jafnvægi
Kennt verður 1-2x í viku, á mánudögum og stundum á fimmtudögum, 24 verklegir tímar plús prófi og skírteini.
Kröfur til knapans: Búin með bóklega og verklega Knapamerki 3. Best er þegar nemandinn er búin að taka bóklega hluti í Knapamerki 4 um haustið.
Kröfur til hestsins: Hesturinn á að vera spennulaus og vera með fín gangskil af 4 gangtegundum og kann það sem kennt er í Knapamerki 3.
Tímasetningar:
Mánudagar og suma fimmtudagar
Hópur 1 Kl 18-19 Kennari: Ragnheiður Þorvaldsdóttir
Hópur 2 Kl 20-21 Kennari: Sonja Noack
Dagsetningar verða kynntar bráðlega. Námskeið lýkur í maí.
Kennari : Ragnheiður Þorvaldsdóttir og Sonja Noack
Minnst 4, max 4 manns.
Námskeiðið byrjar 10. janúar 2022
Verð: Unglingar/Ungmenni 58.000 krónur
Verð: Fullorðnir 80.000 krónur með prófi og skírteini
Skráning: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
 
kn4.JPG
 

Knapamerki 3 - Skráninginn hafinn

Knapamerki 3
ATH: Skráning fer fram í gegnum email
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Fullt nafn og kennitala
verklegur hluti (bóklegt er sérnámskeið sem alltaf kennt er um haustið)
- Knapinn öðlast vald og þekkingu á eftirfarandi þáttum:
- Að láta hestinn víkja um fram og afturhluta
- Knapinn hafi vald á lóðréttri ásetu, stígandi ásetu og hálfléttri ásetu
- Knapinn geti riðið gangskiptingar markvisst og af nákvæmni
- Knapinn geti riðið við slakan taum og langan taum
- Knapinn geti látið hestinn fara krossgang áfram og til hliðar á sama tíma
- Knapinn hafi gott vald á að nota reiðvöllinn rétt
- Knapinn hafi tileinkað sér rétt viðhorf gagnvart hestinum bæði í reiðmennsku & umgengni
- Knapinn geti látið hestinn fara rétt yfir slár og stökkva yfir litla hindrun
Kennt verður 1-2x í viku, á mánudögum og stundum á fimmtudögum, 18 verklegir tímar plús prófi og skírteini.
Kröfur til knapans: Búin með bóklega og verklega Knapamerki 2. Best er þegar Knapinn er búin að taka bóklega hluti í Knapamerki 3 um haustið.
Kröfur til hestsins: Hesturinn á að vera spennulaus og vera með fín gangskil af 4 gangtegundum.
Tímasetningar: Kl 19-20 (Mánudagar og suma fimmtudagar)
Dagsetningar
Janúar: m-10. / f-13. / m-17. / m-24. / m-31.
Febrúar: f-3. / m-7. / f-10. / m-14 / m-21. / f-24. / m-28.
Mars: m-7. / f-10. / m-14. / m-21. / m-28. / f-31.
Apríl: Próf 4.apríl
Kennari : Sonja Noack
Minnst 4, max 4 manns.
Námskeiðið byrjar 10. janúar 2022
Verð: Unglingar/Ungmenni 44.000 krónur
Verð: Fullorðnir 52.000 krónur með prófi og skírteini
kn3.JPG

Námskeið 2022

NÁMSKEIÐ ÆSKULÝÐSNEFNDAR VETURINN 2022 

Öll námskeið eru auglýst með fyrirvara um næga þátttöku og tímasetningu og jafnframt með fyrirvara um innsláttarvillur í auglýsingatexta. Mæta þarf með eigin hest og búnað nema annað kemur fram.

Ef notað er frístundaávisunn hjá Mosfellsbær, er hægt að gera það í gegnum sportabler.

TAKMARKAÐ PLÁSS Á FLEST NÁMSKEIÐ!

Almennt reiðnámskeið minna vanir / meira vanir, 6 skipti  

farið verður í: 

- allan grunn, umgengni við hestinn og almenn öryggisatriði 

- ásetu, sjórnun og aukið jafnvægi 

- reiðleiðir, umferðareglur í reiðhöllinni og fjölbreytt þjálfun 

- nemendur læri að þekkja gangtegundirnar 

Hentar vel krökkum sem hafa mikinn áhuga á hestum og vilja aukinn skilning og þekkingu á almennri þjálfun ásamt því að ná lengra með hestinum sínum. Farið verður í að auka jafnvægi knapa og hests, ná yfirvegaðari og einbeittri reiðmennsku með nákvæmar og léttar ábendingar. Þrautir og leikir á hestbaki.

ATH: KRAKKAR MÆTTA MEÐ EIGIN HEST OG BÚNAÐ.

Ef það er lítið skráning verður bara 1 hópur. Eða 2 hópar og styttur tími.

Kennari: Petrea Ágústsdóttir

Kennt einu sinni í viku á fimmtudögum í 45min, kl 17-18(minna vanir) og 18-19(meira vanir), 6 skipti.

Dagsetningar 2022:

13. janúar 
20. janúar 
03. febrúar 
17. febrúar 
24. febrúar 
03. mars

Verð: 12500kr

Skráningafrestur er 07.01.2022

Pollanámskeið – teymdir og ekki teymdir 6 skipti 

Lögð verður áhersla á jafnvægi á hestbaki og grunnstjórnun hestsins í gegn um leik og þrautir. Foreldrar teyma undir börnunum eða eru á staðnum. Höfum gaman saman með hestinum. Ætlað fyrir 7 ára og yngri.

ATH: KRAKKAR MÆTTA MEÐ EIGIN HEST OG BÚNAÐ.

Kennari: Ragnheiður Þorvaldsdóttir

Dagsetningar Fimmtudagar

BYRJAR 03.2.

03.2. 
10.2. 
17.2. 
24.2. 
03.3.

Ath: Staðsetningu: BLÍÐUBAKKAHÚSIÐ!

kl 1630-17 teymdir

kl 17-1730 ekki teymdir

Kennt einu sinni í viku í hálftíma í 5 skipti

Verð: 5000 kr

 

Keppnisnámskeið 2022 – Arnar Bjarki 

12 jan
19 jan
26 jan
30 jan – bóklegt kennslu í fjarkennslu
2 feb
9 feb
16 feb

Á námskeiðinu verður lögð áhersla á stjórnun knapans á líkamlegu og andlegu jafnvægi hestsins og hvernig gott jafnvægi bætir gangtegundirnar. Einnig verður farið yfir uppbyggingu þjálfunar og þjálfunarstundar og tekur kennslan mið af hverju og einu pari. Kennt verður í einkatímum, 30 mínútur í senn. Verkleg kennsla hefst miðvikudag12. janúar. ATH: Hver knapi getur bara skrá sig með einum hesti, enn möguleiki að skrá sig á biðlista ef eitthvað losnar í gegnum This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Kennari: Arnar Bjarki Sigurðarson

Arnar Bjarki er menntaður sem reiðkennari frá Hólum, hefur starfað sem þjálfari U21 landsliðsins í hestaíþróttum ásamt að hafa þjálfað yngri knapa með miklum árangri. 
Pláss fyrir 12 krakkar.

Verð 27.500 kr

Skráningafrestur 02.01.2022

 

Fimleikar á hestbaki 

Á námskeiðinu gerum við skemmtilegar fimleika æfingar á hestbaki sem bæta jafnvægi, styrk og líkamsvitund sem og auka kjark og sjálfstraust í kringum hesta. Börnin fá þæg hross til afnota og vinna í pörum þar sem annar hringteymir og hinn gerir æfingar á hesti til skiptis, en við byrjum námskeiðið á því að æfa okkur í að hringteyma hest. Börnin mæta með hjálm í tíma.

Max 6 manns

Kennt verður á föstudögum kl 17-18 (ath dagsetningar!)

Dagsetningar

28jan / 04feb / 11feb / 04mars / 11mars / 01april

Kennari verður Fredrica Fagerlund

Verð: 12.500 kr

Skráningafrest Sunnudag 16.01.2022

Skráning á flest námskeið fara fram í  gegnum Sportabler og opna 28.11.

https://www.sportabler.com/shop/hfhordur

 

 

Námskeið fræðslunefndar 2022 

Öll námskeið eru auglýst með fyrirvara um næga þátttöku og tímasetningu og jafnframt með fyrirvara um innsláttarvillur í auglýsingatexta.

TAKMARKAÐ PLÁSS Á FLEST NÁMSKEIÐ! 
 

Hnakkfastur – sætisæfinganámskeið fyrir minna vanir  

Áseta knapans er eitt því mikilvægasta sem hann þarf að tileinka sér. Hún fegrar ekki bara heildarmyndina, heldur er knapi í góðu jafnvægi þægilegri fyrir hestinn, notar skilvirkari ábendingar til að stjórna hestinum og siðast en ekki síst bætir það öryggið þar sem knapinn dettur síður af baki. Kosturinn við ásetuæfingar í hringtaum er að knapinn getur einbeitt sér að sínum eigin líkama og ásetu án þess að þurfa að stjórna hestinum. Á námskeiðinu gerum við æfingar aðallega á hesti en líka á gólfi með markmiðið að bæta líkamsstöðu og -vitund okkar á hestbaki sem og í daglegu lífi. Á námskeiðinu er unnið í pörum þar sem annar hringteymir og hinn gerir æfingar á hesti til skiptis. Nemendur fá hest til afnota og þurfa bara að mæta með hnakk og hjálm. Max 6manns.

Kennt verður í 6 skipti á þriðjudögum kl 18:00 
Dagsetningar 2022: 
 
18. janúar  
25. janúar   
01. febrúar  
08. febrúar  
15. febrúar  
22. febrúar 
Kennari verður Fredrica Fagerlund 
Verð: 19.000 kr

Skráningafrestur er 14.01.2022

 

Grunnþjálfun unga hestsins 

Á námskeiðið er unnið í að bæta svörun grunnábendinga og auka samspil ábendinga, meðal annars í gegnum léttar hliðagangsæfingar. Gangsetning er hafin og ganglag hestsins ræður þvi hversu langt er náð með töltið. Unnið er með hrossin bæði undir hnakk og við hendi með markmiðið að bæta líkamsbeitingu og búa til grunnin fyrir endingagóðan og skemmtilegan reiðhest. Hrossið þarf að vera orðið reiðfært og laust við vandamál eins og hrekki, kergju og rokur svo námskeiðið nýtist sem best.

Þriðjudagar, 6 skipti, Kl 19-20

Dagsetningar: 
18. janúar  
25. janúar  
01. febrúar  
08. febrúar  
15. febrúar  
22. febrúar

Kennari verður Fredrica Fagerlund 
 
Verð: 19.000 kr

Hringteymingar- og brokkspíruþjálfun 
Hringteymingarvinna eru frábær tilbreyting í þjálfun hestsins sem stuðlar að bættu jafnvægi, auknum sveigjanleika og réttri vöðvauppbyggingu. Farið verður í hvernig hægt er að notast við hringteymingarvinnu til þess að þjálfa auga knapans við að greina misstyrk og líkamsbeitingu hestsins, ná betri stjórn á yfirlínu og andlegu jafnvægi. Jafnframt hefur brokkspíru- og hindrunarstökksþjálfun fjölmarga ávinninga, s.s. að auka liðleika, styrk og samhæfingu. Slík þjálfun hvetur hestinn til þess að teygja á yfirlínunni, virkja kvið- og kjarnvöðva og hefur einnig jákvæð andleg áhrif þar sem hesturinn verður einbeittari, öruggari og jákvæðari. 
 
Farið er í grunnatriði hringteymingarþjálfunar, notkun hringtaumsbúnaðar og í framhaldi af því í notkun á brokkspírum og litlum hindrunum.

Nemendur mæta með eigin hest og búnað á hestinn. Búnað sem þarf að koma með í fyrsta tíma er snúrumúll, vaður, hringtaumsmúll eða multibridle, reiðtaumur og reiðpískur. 
Hámark 3 nemendur í hverjum hóp, 6 skipti. 

Þriðjudagar, 6 skipti, kl. 20-21.

11.janúar 
18.janúar
25.janúar 
01.febrúar 
08.febrúar 
15.febrúar

Kennari verður Hrafnhildur Helga Guðmundsdóttir

Verð: 29000 kr 
Skráningafrestur 3.1.2022

 
Vinna við hendi 
Farið verður í hvernig hægt er að notast við vinnu við hendi til að hjálpa hestinum að skilja grunnábendingar og að ná betri stjórn á yfirlínu og andlegu og líkamlegu jafnvægi. Grundvöllur árangurs er að hesturinn sé sáttur og skilji ábendingar knapans, hvort sem það er frá jörðu eða á baki. 
 
Vinna við hendi hjálpar til við bæta samhæfingu þjálfarans og gefur honum færi á því að sjá hvernig hesturinn bregst við ábendingum og hreyfir fæturnar. Jafnframt hefur slík vinna afar jákvæð áhrif á samband manns og hests, eykur gagnkvæma virðingu og styrkir leiðtogahlutverkið. Farið verður í notkun fimiæfinga frá jörðu og hvaða ávinning þær hafa fyrir hestinn. 
 
Nemendur mæta með eigin hest og búnað. Búnað sem þarf að koma með í fyrsta tíma er snúrumúll, vaður, beisli, reiðtaumur og reiðpískur. Hámark 5 nemendur saman í hverjum hóp, 6 skipti.

Þriðjudagar, 6 skipti, kl. 21-22.

11.janúar 
18.janúar 
25.janúar 
01.febrúar 
08.febrúar 
15.febrúar

Kennari verður Hrafnhildur Helga Guðmundsdóttir

Verð: 19000 isk

Skráningafrestur 3.1.2022

Töltnámskeið  

Lögð verður áhersla á ásetu og stjórnum. Form, mýkt, jafnvægi og samspil ábendinga.

Kennt verður í 6 skipti á föstudögum á föstum dagsetningum  kl 18:00 
 
Dagsetningar 2022: 
28jan / 04feb / 11feb / 04mars / 11mars / 01april

 
Kennari verður Ragnheiður Þorvaldsdóttir 
 
Verð: 19.000 kr

Skráningafrestur 23.1.2022

Einkatímapakki með Anton Páll Níelssýni 

Anton Páll Níelsson er menntaður reiðkennari B frá Háskólanum á Hólum.

Hann hefur kennt við Hólaskóla í fjölda mörg ár auk þess að sinna reiðkennslu víða um heim og rækta hross. Anton Páll hefur verið einn af þjálfurum íslenska landsliðsins í hestaíþróttum sem og nokkrum erlendum landsliðum, t.d. því sænska og austurríska. Anton Páll er þekktur fyrir einfalda, hreinskilna, hestvæna og mjög árangursríka nálgun í reiðkennslu sinni.

Einkatímar 2x45min

Dagsetningar (Þriðjudagar):

11.janúar

25.janúar

Tímar eru frá kl 11 til 18 og viljum við biðja þá sem geta velja tíma snemma á daginn að velja það og leyfa hinum sem komust bara seinna á dag að fá aðgang á þeim tíma.

Skráðar nemendur geta skráð sig svo við framhald 8. og 22. febrúar og hafa forgang þar.

Verð: 30000isk

Einkatímapakki með Ingunn Birna Ingólfsdóttir eða Ragnheiður Þorvaldsdóttir 

Námskeið sérsniðað á hvern og eitt nemandi.

5x30min einkatímar - dagsetningar og tímasetingar eftir samkomulag enn aðallega eru lausar tíma fyrr á daginn – litill laus í reiðhöllinni um kvöldið. Endilega hafið samband í gegnum This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og við tökum stöðuna.

Verð 27000 - Skráning í gegnumThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Skráning á flest námskeið fara fram í  gegnum Sportabler og opna 28.11.

https://www.sportabler.com/shop/hfhordur

Helgarnámskeið 2022 – ekki hægt að skrá ennþá

21.-23. janúar Helgarnámskeið með Hinrik Sigurðsson 
29.-30. janúar 2022 Sirkusnámskeið Ragnheiður Þorvalds 
18.-20. febrúarHelgarnámskeið með Hinrik Sigurðsson
19. mars Keppnisþjálfun með Þórarinn Eymundsson 1/2
02. april Keppnisþjálfun með Þórarinn Eymundsson 2/2

Námskeið fræðslunefndar 2023

Námskeið fræðslunefndar 2024

Öll námskeið eru auglýst með fyrirvara um næga þátttöku og tímasetningu og jafnframt með fyrirvara um innsláttarvillur í auglýsingatexta.

TAKMARKAÐ PLÁSS Á FLEST NÁMSKEIÐ!

Gæðingafiminámskeið með Fredricu Fagerlund  - FULLT

Gæðingalistnámskeið með Fredricu Fagerlund (hordur.is)

Í vetur verður Fredrica Fagerlund aftur með námskeið í Gæðingafimi en Fredrica hefur náð góðu gengi sjálf í gæðingafimi.

Námskeiðið er hugsað fyrir öllum aldurshópnum og þá líka þau sem stefna á taka sínu fyrsta skref í að keppni í greininni.
Námskeiðið byggist á einum bóklegum tíma þann 13. des, sýnikennsla þann 31.janúar ásamt 6 verklegum 45 mínútna einkatímum. Verklegur hluti er því dreift yfir 3 helgar.

Bóklegt í Harðarbol: 13.des kl 1830-2000
Sýnikennsla: 31.jan kl 19:00
Verkleg kennsla fer fram helgarnar 16.-17. desember – 27.-28. janúar – 24.-25. febrúar

8pláss í boði


Verð 73000
Skráning opnar þriðjudaginn 07.november kl 12:00

 

Töltnámskeið

Á töltnámskeiðinu verður lögð áhersla á mýkt, þjálni og rétta líkamsbeitingu hests og knapa.
Notast verður við ýmsar mismunandi reiðleiðir við styrkingu gangtegundarinnar tölts, sem er verður hægt að bæta í verkfærakistu knapans.
Knapi þarf að hafa góða grunnstjórnun á hesti sínum.

Kennt verður á föstudögum og er námskeiðið 6 skipti í heildina.

Kennt verður á eftirfarandi dagsetningum: 19.1. / 26.1. / 16. 2. / 23. 2. / 15. 3. / 22. 3.

18:45-19:30 
9:30-20:15 
Kennt verður í 4 manna hópum í 45 mínútur í senn.

Verð: 17500kr

Kennari námskeiðsins verður Guðrún Margrét Valsteinsdóttir sem er útskrifuð með B.Sc. í Reiðmennsku og reiðkennslu frá Háskólanum á Hólum.

 

Hindrunarstökknámskeið

Hindrunarstökksnámskeið er skemmtileg og fjölbreytt námskeið þar sem unnið er með hindranir og brokkspýrur til að styrkja þor og styrk bæði hjá hesti og knapa. Byrjað er á lágum hindrunum og eru þær hækkaðar hægt og rólega eftir getu knapa og hests. Knapi þarf að hafa góða stjórn á hesti sínum og þarf að hafa gott grunnjafnvægi.

Kennt er í 45 mínútur í senn, í 4-5 manna hópum. Kennt verður á föstudögum og er námsekiðið 6 skipti í heildina. Kennt verður á eftirfarandi dagsetningum: 19.1. / 26.1. / 16. 2. / 23. 2. / 15. 3. / 22. 3.

17:45-18:30

Kennari námskeiðsins verður Guðrún Margrét Valsteinsdóttir sem er útskrifuð með B.Sc. í Reiðmennsku og reiðkennslu frá Háskólanum á Hólum.

Verð: 17500kr

 

Vinna í hendi - námskeið - FULLTBÓKAÐ

6 skipti kennt á þriðjudögum kl.18:30 í Blíðubakkahöllinni.

Tíminn er í 45min - 2hópar í boði (1830 og 1915)

Fyrsti tími 16. Janúar

Farið verður í gegnum nokkrar mismunandi útfærslur af vinnu við hendi.
Vinna við hendi styrkir samband knapa og hests, eykur fjölbreytni í þjálfun, er liðkandi (fyrir bæði mann og hest) æfir stjórnun og samhæfingu og svo mætti lengi telja.
Vinna við hendi er líka frábær undirbúningur fyrir það sem koma skal á baki.

Kennari verður Ingunn Birna Ingólfsdóttir en hún er útskrifaður þjálfari og reiðkennari frá Hólum og að auki með áralanga reynslu af tamningum og þjálfun.

Verð: 18500 kr

4pláss á hóp

 

Fimi og Flæði - fullt

Villt þú ná betra samspili með hestinum þínum og bæta líkamsbeytingu þína og hestsins?

Hestamannafélagið Hörður mun bjóða upp á fiminámskeið í vetur þar sem lagt verður áherslu á að bæta líkamsbeitingu knapa og hests í gegnum fimiæfingar.

Hvort sem verið er að stefna á keppni eða að byggja upp þjálan og góðan reiðhest þá er þetta námskeið fyrir alla sem hafa áhuga á að þróa sig og hestinn sinn áfram.
Námskeiðið er kennt sirka einu sinni í mánuði á fimmtudögum í 4 skipti - í formi hópatíma.

Dagsetningar:
11. janúar
01. febrúar
07.mars
21.mars

Tíma: 19:00-20:00
Verð: 13 000kr

4 pláss

Kennari: Thelma Rut Davíðsdóttir

Kennslustað: Blíðubakkahöllinn

 

 

Karlahópur - FULLT

LOKSINS er aftur kominn karlahópur !!!

Áhersla á Töltþjálfun og þjálni.

Það verða 3 saman í 45min kennslu.

Inga María er 55 ára reiðkennari frá Hólum. Búin að vera í hestum frá blautu barnsbeini. Frumtamningar og almenn þjálfun hesta í 35 ár þau 6 ár sem ég starfaði á Feti voru á bilinu 40-50 tryppi tamin á hverju hausti og tók ég fullan þátt í því. Var einnig við kennslu frumtamningar á Hólum 2 haust.

Dagsetningar:
14. 21. 28. februar
6. 13. 20. mars
Kl 20:15-21:00

Kennslan fer fram í Stóra Höllinni.

Verð: 22500kr

Almennt reiðnámskeið

Það verða 3 saman í 45min kennslu.

Inga María er 55 ára reiðkennari frá Hólum. Búin að vera í hestum frá blautu barnsbeini. Frumtamningar og almenn þjálfun hesta í 35 ár þau 6 ár sem ég starfaði á Feti voru á bilinu 40-50 tryppi tamin á hverju hausti og tók ég fullan þátt í því. Var einnig við kennslu frumtamningar á Hólum 2 haust.

Dagsetningar:
14. 21. 28. februar
6. 13. 20. mars
Kl 18:30-19:15(fullt) og 19:15-20:00(1 laust)

Kennslan fer fram í Blíðubakkahöllinni.

Verð: 22500kr

 

Unghestaþjálfun með Ingu Maríu - FULLT

Unghestar - reiðfærir - gangsetningar - framhaldsþjálfun

Það verða 2 saman í 30min í senn.

Inga María er 55 ára reiðkennari frá Hólum. Búin að vera í hestum frá blautu barnsbeini. Frumtamningar og almenn þjálfun hesta í 35 ár þau 6 ár sem ég starfaði á Feti voru á bilinu 40-50 tryppi tamin á hverju hausti og tók ég fullan þátt í því. Var einnig við kennslu frumtamningar á Hólum 2 haust.

Dagsetningar:
14. 21. 28. februar
6. 13. 20. mars
Kl 17-17:30 og 17:30-18:00 og 18:00-18:30

Kennslan fer fram í Blíðubakkahöllinni.

Verð: 25000kr

 

 

 

Knapamerki Námskeið  

Knapamerki 3 - verklegt - fullorðna - FULLT

verklegur hluti (bóklegt er sérnámskeið sem alltaf kennt er um haustið) 

Knapinn öðlast vald og þekkingu á eftirfarandi þáttum: 

Að láta hestinn víkja um fram og afturhluta 

Knapinn hafi vald á lóðréttri ásetu, stígandi ásetu og hálfléttri ásetu 

Knapinn geti riðið gangskiptingar markvisst og af nákvæmni 

Knapinn geti riðið við slakan taum og langan taum 

Knapinn geti látið hestinn fara krossgang áfram og til hliðar á sama tíma 

Knapinn hafi gott vald á að nota reiðvöllinn rétt 

Knapinn hafi tileinkað sér rétt viðhorf gagnvart hestinum bæði í reiðmennsku & umgengni 

Knapinn geti látið hestinn fara rétt yfir slár og stökkva yfir litla hindrun 

Kennt verður 1-2x í viku, á þriðjudögum 1930 og stundum á fimmtudögum 19

18 verklegir tímar plús prófi og skírteini.

Kröfur til knapans: Búin með bóklega og verklega Knapamerki 2. Best er þegar Knapinn er búin að taka bóklega hluti í Knapamerki 3 um haustið. 

Kröfur til hestsins: Hesturinn á að vera spennulaus og vera með fín gangskil af 4 gangtegundum.

Tímasetningar: Kl 1930-2030 (Þriðjudaga og suma fimmtudaga 19-20

Dagsetningar 

Janúar þ02 / þ09 / f04 / þ16 / f18 / þ 23 / þ30 
Febrúar f 08 / þ06 / þ13 / f15 /þ20 / þ27 /f29 / 
Mars þ05 / þ12 / f14 /þ19 /   
Verklegt próf þriðjudagur 21. Mars

Kennari : Sonja Noack

Minnst 4, max 4 manns. 

Námskeiðið byrjar 02. janúar 2024

Verð: fullorðna 66000 krónur 

 Leiðtogafærni og samspil - Helgarnámskeið

Á þessu námskeiði er farið í ýmiskonar leiðtogaæfingar með hestinn. Nemendur
æfa að bera sig rétt og staðsetja sig. Læra
lesa í atferli hestsins og líkamsstöðu.
Fá virðingu og fanga athygli hanns. Fá hestinn rólegan, færanlegann og
samstarfsfusann. Unnið er með hestinn í
hendi við snúrumúl og langan vað. Unnið
er út frá hugmyndafræði Pat Parelli og Monty Roberts.

 Kennari: Ragnheiður Þorvaldsdóttir

Þáttakendur þurfa að vera allavega 12ára 

Dagsetning: 14. og 15.janúar 2023

Verð: 12000kr 

Minnst 8 max 12 manns :)

Einkatímapakki með kennara af eigin vali í Blíðubakkahöllinni

Thelma Rut Davíðsdóttir
Ingunn Birna Ingólfsdóttir 
Ragnheiður Þorvaldsdóttir 
Sonja Noack

Námskeið sérsniðað á hvern og eitt nemandi.

5x30min einkatímar - dagsetningar og tímasetingar eftir samkomulag enn aðallega eru lausar tíma fyrr á daginn – litill laus í reiðhöllinni um kvöldið nema fimmtudaga. Endilega hafið samband í gegnum This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og við tökum stöðuna.

Skráning í gegnumThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

 
 
 

Skráning á flest námskeið fara fram í  gegnum Sportabler og opna 28.11.

https://www.sportabler.com/shop/hfhordur

 

 

 Sýnikennslur 2023

12 janúar Sigvaldi Lárús
02 febrúar Fredrica Fagerlund

Helgarnámskeið 2023

Gæðingafiminámskeið yfir 5 helgar með Fredrica Fagerlund

14.-15. janúar Námskeið: ​Leiðtogafærni og samspil (hordur.is) Ragnheiður Þorvalds 
20.-22. Janúar Kennslunámskeið fyrir Reiðkennarar með Mette Mannseth 
11.-12 febrúar Fríða Hansen

Námskeið æskulýðsnefndar – seinni hluti/framhald. Hefjast miðjan mars

Námskeið æskulýðsnefndar – seinni hluti/framhald. Hefjast miðjan mars

 

Almennt reiðnámskeið 11-14 ára

Sjálfstætt framhald af því námskeiði sem er að ljúka.

- Nemendur læri undirstöðuatriði reiðlistar og öryggi til að sitja hest - Stjórnun og áseta - Nemandi þekki gangtegundir og læri að ríða þær - Nemandi þekki gangtegundir hjá öðrum í reið - Umgengni við hestinn (fætur teknar upp, teyming o.s.frv.) - Nemandi kunni að leika sér við hestinn, hvað má og hvað má ekki

Kennari Malin Jansson. Kennt einu sinni í viku á fimmtudögum

Verð: 8.000 kr

Almennt reiðnámskeið 8.-10.ára

Sjálfstætt framhald af því námskeiði sem er að ljúka.

- Áseta og stjórnun - Ásetuæfingar - Skil á gangtegundum - Reiðleiðir og umferðarreglur - Gaman Sjá nánar á heimasíðu Harðar

Kennari Line Norgaard. Kennt einu sinni í viku á miðvikudögum.

Verð: 8.000 kr

Frítt pollanámskeið – teymdir

Fjölbreytt og skemmtilegt námskeið fyrir krakka. Foreldrar teyma undir börnunum.

Kennari Súsanna Sand Ólafsdóttir. Kennt einu sinni í viku á sunnudögum kl. 10:00. Hefst sunnudaginn 9. mars og er í 6 skipti.

Skráning: senda póst á Heidi Andersen This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða hringja í síma 822-4996

Frítt pollanámskeið – ekki teymdir

Fjölbreytt og skemmtilegt námskeið fyrir krakka. Börnin ríða sjálf, en foreldrar þurfa að vera á staðnum til aðstoðar. Ætlað fyrir 7 ára og yngri.

Kennari Súsanna Sand Ólafsdóttir. Kennt einu sinni í viku á sunnudögum kl. 11:00. Hefst sunnudaginn 9. mars og er í 6 skipti.

Skráning: senda póst á Heidi Andersen This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða hringja í síma 822-4996

Fjörnámskeið/TREK námskeið

Skráning auglýst á næstu dögum, en námskeiðin hefjast upp úr miðjum mars.

Skráningar á almennu reiðnámskeiðin skulu eiga sér stað í gegnum Sportfeng (velja skráningarkerfi): http://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add Velja námskeið - Velja hestamannafélag (Hörður) – Skrá kennitölu þátttakanda – (Ef kennitala ekki í félagaskrá, þarf að fara inná www.hordur.isog sækja um aðild) – Velja atburð (og hóp ef fleiri en einn hópur) – Setja í körfu

Ganga frá greiðslu (ef nota skal frístundaávísun, skal fara inná Íbúagátt síns sveitarfélags og ráðstafa til Hestamannafélagsins Harðar) – Fylla inn upplýsingar um greiðanda (ef frístundaávísun, skal setja í athugasemdir, reikningsnúmer sem má millifæra á) – Velja greiðslufyrirkomulag: Greiðslukort eða millifærsla. Skráning telst ekki gild nema greiðsla hafi borist.  Ef frístundaávísun er send til félagsins, mun félagið endurgreiða viðkomandi þegar greiðsla berst frá sveitarfélaginu.

Aðstoð við skráning á námskeiðin er hjá Heidi  í síma 822-4996 og netfangi This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. . Nánari upplýsingar um

Reiðnámskeið fyrir börn og ungmenni með fötlun

Fyrir hverja er námskeiðið:
Öll börn og ungmenni sem eiga við einhvers konar fötlun eða skerta getu að stríða vegna sjúkdóma eða af öðrum ástæðum og sem hafa áhuga á að umgangast hesta eða vilja kynnast hestamennsku.

Markmið námskeiðsins:

  • Eiga frábæra stund saman í skemmtilegur umhverfi
  • Geti umgengist hesta af öryggi og óttaleysi
  • Að kynnast hestinum og læra undirstöðuatriði í umhirðu hestsins.
  • Lært undirstöðuatriði í reiðmennsku eftir getu hvers og eins
  • Auka sjálfstæði og færni í samskiptum við hesta
  • Að bæta líkamsvitund
  • Að auka samhæfingu handa, fóta og skynfæra.
  • Styrkja leiðtogahlutverk í samskiptum við hestinn.

Lagt er áhersla á fjölbreytni og að allir nemendur fái sem mest út úr námskeiðinu eftir þörfum hvers og eins.
Kennslan er í höndum reyndra leiðbeinanda með margra ára reynslu í reiðkennslu fatlaðra, sjúkraþjálfari verður til taks sem og aðrir aðstoðarmenn eftir þörfum.

Það sem er innifalið í námskeiðsgjaldi:

  • Öll kennsla og kennslugögn
  • Lagðir eru til hestar fyrir hvern og einn sem og allur útbúnaður til reiðar þar á meðal sérsmíðaðir hnakkar og annar útbúnaður eftir þörfum.
  • Allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal í lok námskeiðs.


Námskeiðsgjald er 18.000 kr.

 

Námskeið 1 : 19. september - 17. október

Mánudagar kl. 14:45 - 15:45. 5 skipti í senn

19. sept, 26. sept, 3.okt, 10.okt, 17.okt.

Skrá sig á þetta námskeið

 

Námskeið 2 : 23. september - 21. október

Föstudagar kl. 14:45 15:45. 5 skipti í senn

23.sept,30.sept,7.okt,14.okt,21.okt. 

Skrá sig á þetta námskeið

 

Námskeið 3 : 24.október - 21. nóvember

Mánudagar kl. 14:45 - 15:45 . 5 skipti í senn

24.okt,31.okt,7.nóv,14.nóv,21.nóv

Skrá sig á þetta námskeið

 

Námskeið 4 : 28.október - 25.nóvember

Föstudagar kl. 14:45 - 15:45. 5 skipti í senn

28.okt,4.nóv,11.nóv,18.nóv,25.nóv.

Skrá sig á þetta námskeið

Frekari upplýsingar og skráning er hjá Auði G. Sigurðardóttur

 

s: 8997299/8986017

 

Netfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. 

 

Umsjónarmaður námskeiðsins er Súsanna Ólafsdóttir, reiðkennari.

NÁMSKEIÐ ÆSKULÝÐSNEFNDAR VETURINN 2023/24

NÁMSKEIÐ ÆSKULÝÐSNEFNDAR VETURINN 2023/2024

Öll námskeið eru auglýst með fyrirvara um næga þátttöku og tímasetningu og jafnframt með fyrirvara um innsláttarvillur í auglýsingatexta. Mæta þarf með eigin hest og búnað nema annað kemur fram.

 

TAKMARKAÐ PLÁSS Á FLEST NÁMSKEIÐ!

Spennandi námskeið fyrir krakka í Herði.
Aldur er ca 10-15ára (reynum að hópa eftir aldri ef það verða nógu margar skráningar).
Námskeiðið er byggt upp á bæði verklegum og bóklegum hluta.
Námskeiðið byrjar á bóklegan tíma í Harðarboli 03.1. kl 19:00-20:00.


Verklegir tímar fara svo fram í Reiðhöll Harðar á eftirfarandi dagsetningum (miðvikudögum) 18:15-19:00:
10.01.
17.01.
24.01. BLÍÐUBAKKA
31.01.
07.02.

Það verða bara 4-5 í hóp og er tíminn 45min
Þegar það eru helgaruppákomur hjá æskulýðsnefnd er það innifalið í þennan námskeið nema annað verður tekið fram. Kennari bóklegt/verklegt: Thelma Rut Davíðsdóttir

Verð á hvern þáttakanda er 18000 kr
Það verður framhald í boði!

 

Hindrunarstökksnámskeið - FULLT

Skemmtileg og fjölbreytt námskeið þar sem unnið er með hindranir og brokkspýrur til að styrkja þor og styrk bæði hjá hesti og knapa.
Byrjað er á lágum hindrunum og eru þær hækkaðar hægt og rólega eftir getu knapa og hests.

Knapi þarf að hafa góða stjórn á hesti sínum og þarf að hafa gott grunnjafnvægi.

Kennt er í 45 mínútur í senn, í 4-5 manna hópum.

Kl 17-17:45 

Kennt verður á föstudögum og er námsekiðið 6 skipti í heildina.

Kennt verður á eftirfarandi dagsetningum: 19.1. / 26.1. / 16. 2. / 23. 2. / 15. 3. / 22. 3.

Kennari námskeiðsins verður Guðrún Margrét Valsteinsdóttir sem er útskrifuð með B.Sc. í Reiðmennsku og reiðkennslu frá Háskólanum á Hólum.

Verð: 12500kr

 

Pollanámskeið – teymdir og ekki teymdir - 2024 - 5 skipti

Lögð verður áhersla á jafnvægi á hestbaki og grunnstjórnun hestsins í gegn um leik og þrautir. Foreldrar teyma undir börnunum eða eru á staðnum. Höfum gaman saman með hestinum. Ætlað fyrir 7 ára og yngri. 

ATH: KRAKKAR MÆTTA MEÐ EIGIN HEST OG BÚNAÐ. 

Kennari: Thelma Rut Davíðsdóttir

Dagsetningar Þriðjudagar 

BYRJAR 23.1.

23. janúar

30. janúar

06. febrúar 

13. febrúar 

20. febrúar 

kl 1630-1700 teymdir

kl 1700-1730 ekki teymdir

Kennt einu sinni í viku í hálftíma í 5 skipti

Verð: 5000 kr

 

farið verður í:
- allan grunn, umgengni við hestinn og almenn öryggisatriði
- ásetu, sjórnun og aukið jafnvægi
- reiðleiðir, umferðareglur í reiðhöllinni og fjölbreytt þjálfun
- nemendur læri að þekkja gangtegundirnar
Hentar vel krökkum sem hafa mikinn áhuga á hestum og vilja aukinn skilning og þekkingu á almennri þjálfun ásamt því að ná lengra með hestinum sínum. Farið verður í að auka jafnvægi knapa og hests, ná yfirvegaðari og einbeittri reiðmennsku með nákvæmar og léttar ábendingar. Þrautir og leikir á hestbaki.
ATH: KRAKKAR MÆTTA MEÐ EIGIN HEST OG BÚNAÐ.
Ef það er lítið skráning verður bara 1 hópur.
Kennari: Thelma Rut Davíðsdóttir
Kennt einu sinni í viku á þriðjudögum, kl 1730-18(minna vanir) og 18-1830(meira vanir), 6 skipti.
Dagsetningar 2024
16. janúar
23. janúar
30. janúar
06. febrúar
13. febrúar
20. febrúar
Verð: 14000kr

 


 Keppnisnámskeið Steinar Sigurbjörnsson - Landsmótshópur - FULLT

8.1. ZOOM fundur

12.1. Opin Sýnikennsla

15.1. byrjar verklega kennsla

   

Knapamerki 2 – bóklegt og verklegt 2024

Knapamerki 2 – bóklegt og verklegt
***Markmið Knapamerkjanna
Að stuðla að auknum áhuga á reiðmennsku á íslenskum hestum og hestaíþróttum.
Að auðvelda aðgengi að skipulagðri og markvissri menntun í reiðmennsku og hestaíþróttum fyrir unga sem aldna.
Að bæta þekkingu á meðferð, notkun og umhirðu íslenska hestsins á breiðum grunni.
Með stigskiptu námi í hestamennsku sem hér er kynnt er stuðlað að bættu aðgengi að fræðslu, þjálfun og menntun í hestamennsku. Markmiðið er að kennslan verði faglegri og samræmdari en verið hefur og nemandinn leiddur stig af stigi í takt við getu hans og áhuga. Þar með er lagður grunnur að árangri og öryggi í hestamennskunni hvort sem hún verður stunduð til frístunda eða sem keppnisíþrótt í framtíðinni. ***
Knapamerki 2:
Knapinn öðlast vald og þekkingu á eftirfarandi þáttum:
x Geta látið hestinn kyssa ístöð á baki og við hönd, til beggja hliða
x Riðið einfaldar gangskiptingar
x Riðið helstu reiðleiðir á reiðvelli
x Geta riðið í hlutlausri lóðréttri ásetu, hálfléttri og stígandi ásetu
x Hafa gott jafnvægi á baki hestsins og nota rétt taumhald
x Látið hestinn stoppa, standa kyrran og ganga aftur af stað
x Geta riðið á slökum taum og léttri taumsambandi
x Grunnskilningur fyrir samspil ábendinga
x Sýna það í reiðmennsku og umgengni við hestinn að hann hafi tileinkað sér rétt viðhorf til hans
x Geta riðið hesti á víðavangi, haft góða stjórn og gætt fyllsta öryggis
Kennt verður 2 bóklega (1,5h) og 12 verklegir tímar (plús verklega próf og bóklega próf).
Námskeið byrjar á bóklega tíma 8.janúar 2024 Kl 1830.
Dagsetningar: Bóklegar tímar í Hardabol á mánudögum:
8.1. og 15.1. kl 17:30-19:00
Bóklegt próf mánudaginn 22. janúar 2024 – í Hardarboli Kl 1800-1900
Verklegar tímar á miðvikudögum
17jan / 24jan / 31jan
07feb / 14feb / 21feb / 28feb
06mars / 13mars / 20mars /
03april / 10april
(Páskafrí 27mars)
Verklegt Próf: 17april2024
Tímasetningar: Tímar verða milli 17:00 og 19:00 fer eftir skráningu.
Jafnvel bæt við annan dag enn miðvikudagar.
Kröfur til knapans: Það þarf að vera búin með Knapamerki 1.
Kröfur til hestsins: Hesturinn verður að vera spennulaus og rólegur. Hesturinn þarf að fara um á brokki án vandarmála og einnig þarf að geta riðið tölt og taka stökk.
Kennarar: Thelma Rut Davíðsdóttir
Verð: Ungmenni 38.000 krónur með prófi og skírteini
Verð: Fullorðnir 52.000 krónur með prófi og skírteini

 

Knapamerki 3 - verklegt - börn - unglinga - ungmenni

verklegur hluti (bóklegt er sérnámskeið sem alltaf kennt er um haustið) 

Knapinn öðlast vald og þekkingu á eftirfarandi þáttum: 

Að láta hestinn víkja um fram og afturhluta 

Knapinn hafi vald á lóðréttri ásetu, stígandi ásetu og hálfléttri ásetu 

Knapinn geti riðið gangskiptingar markvisst og af nákvæmni 

Knapinn geti riðið við slakan taum og langan taum 

Knapinn geti látið hestinn fara krossgang áfram og til hliðar á sama tíma 

Knapinn hafi gott vald á að nota reiðvöllinn rétt 

Knapinn hafi tileinkað sér rétt viðhorf gagnvart hestinum bæði í reiðmennsku & umgengni 

Knapinn geti látið hestinn fara rétt yfir slár og stökkva yfir litla hindrun 

Kennt verður 1-2x í viku, á þriðjudögum 1830 og stundum á fimmtudögum 18-19 inni blíðubakkahöllinni,

18 verklegir tímar plús prófi og skírteini.

Kröfur til knapans: Búin með bóklega og verklega Knapamerki 2. Best er þegar Knapinn er búin að taka bóklega hluti í Knapamerki 3 um haustið. 

Kröfur til hestsins: Hesturinn á að vera spennulaus og vera með fín gangskil af 4 gangtegundum.

Tímasetningar: Kl 1830-1930 (Þriðjudaga og suma fimmtudaga 18-19(fimmtudagar eru inni Blíðubakka)

Dagsetningar 

Janúar þ02 / þ09 / f11 / þ16 / þ 23 / þ30
Febrúar f 01 / þ06 / þ13 / þ20  / þ27
Mars þ05 / f07 /þ12 / þ19 / f21 
Apríl þ02 / þ09 
Verklegt próf þriðjudagur 16. Apríl 

ATH PÁSKAFRÍ  26.mars2024

Kennari : Thelma Rut Davíðsdóttir

Minnst 4, max 4 manns. 

Námskeiðið byrjar 02. janúar 2024

Verð: Unglingar/Ungmenni 44.000 krónur 

 

Skráning á flest námskeið fara fram í  gegnum Sportabler 

https://www.sportabler.com/shop/hfhordur

 

 

 

Sirkus-Helgarnámskeið

Helgina 10 -11 mars

Stutt lýsing: 
Laugardagur:Byrjað á 1 bóklegum tíma svo 1 veklegur tími fyrir hádegi og 1 eftir hádegi. 7 games eftir Pat Parelli. Sunnudagur: 1 tími fyrir hádegi og 1 tími eftir hádegi. Smellu þjálfun, brellu þjálfun og umhverfis þjálfun.

Unnið er eingöngu með hestinn í hendi. Útbúnaður sem þarf er snúrumúll og langur mjúkur kaðaltaumur. Smella sem fæst í helstu gæludýrabúðum og Líflandi.

Skemmtilegt námskeið til að nálgast hestamennskuna á annan hátt.
Ragnheiður leggur mikið upp úr fjölbreitni í þjálfun og að gleyma ekki afhverju við erum öll í hestamennsku, JÚ AF ÞVÍ AÐ ÞAÐ ER SVO GAMAN.

Lágmark þátttakenda er 8 manns og hámarks 12. Aldurstakmark 12 ára.
Kennari Ragnheiður Þorvaldsdóttir.
5 tímar 1 bóklegur og 4 verklegir.
Verð 12000

Skráning: skraning.sportfengur.com28191046_10215499892960417_391140567_n.jpg

Námskeið æskulýðsnefndar 2012

Pollanámskeið 1/teymdir 4-5 ára

  • Farið verður í gegnum hestalitina, líkamsparta hestins, reiðtygi, skeifur, umhirðu hesta og útreiðar
  • Farið yfir ásetu og taumhald.
  • Stjórnun
  • Jafnvægis æfingar
  • Reiðleiðir og umferðarreglur.
  • Hvernig hestur er teymdur
  • Leiki og þrautabrautir
  • Gaman
  • Kennt verður einu sinni í viku í sex skipti
  • Kennt á fimmtudögum, tími óljós enn sem komið er



Kennari Ragnheiður Þorvaldsdóttir

Verð kr. 10.000,- 


Skráning This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Skráningarfrestur til 15. janúar 2012

 

Pollanámskeið 2/ekki teymdir/framhald 5-7 ára

  • Farið verður í gegnum hestalitina, líkamsparta hestins, reiðtygi, skeifur, umhirðu hesta og útreiðarFarið yfir ásetu og taumhald.
  • Stjórnun
  • Jafnvægis æfingar
  • Reiðleiðir og umferðarreglur.
  • Hvernig hestur er teymdur
  • Leiki og þrautabrautir
  • Ögn erfiðari útfærslur á verkefnunum heldur á pollar 1
  • Gaman
  • Kennt verður einu sinni í viku í sex skipti
  • Kennt á fimmtudögum, tími óljós enn sem komið er



Kennari Ragnheiður Þorvaldsdóttir

Verð kr. 10.000,- 


Skráning This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Skráningarfrestur til 15. janúar 2012

 

Almennt reiðnámskeið /8-10 ára

  • Áseta og stjórnun
  • Skil á gangtegundum
  • Reiðleiðir og umferðarreglur
  • Ásetuæfingar
  • Gaman
  • Kennt í 8 skipti
  • Kennt á mánudögum eða fimmtudögum (því miður enn óljóst), tími óljós enn sem komið er

Kennari; Line Noorgard

Verð kr. 12.000,- 

  Fullbókað á þetta námskeið !

 

 

Almennt reiðnámskeið /10-14 ára

Markmið:

  • Nemendur læri undirstöðuatriði reiðlistar og öryggi til að sitja hest
  • Stjórnun og áseta
  • Nemandi þekki gangtegundir og læri að ríða þær
  • Nemandi þekki gangtegundir hjá öðrum í reið
  • Umgengni við hestinn (fætur teknar upp, teyming osvfrv)
  • Nemandi kunni að leika sér við hestinn, hvað má og hvað má ekki
  • Kennt er í 8 skipti
  • Kennt á þriðjudögum, tími óljós enn sem komið er

Kennari: Sigrún Sigurðardóttir

Verð kr. 12.000,- 


  Fullbókað á þetta námskeið !

 

Keppnisnámskeið 
fyrri hluti

 

Námskeiðið byrjar aðra vikuna í janúar.
Hver tími er 45-50 mín
Átta skiptiÍ annari viku námskeiðs verður sýnikennsla í reiðhöll á æfingum úr fyrstu fjórum tímunum
Í fimmtu viku námskeiðs verður sýnikennsla í reiðhöll á æfingum út tíma fimm til átta.


1 tími:

  • Slökun, baugavinna, vinna í hendi
  • Teyming við hlið
2 tími
  • Upphitun, baugavinna, vinna í hendi, A-B æfingar
  • Hálflétt og stígandi áseta
3 tími
  • Upphitun, baugavinna, vinna í hendi
  • Hliðargangsæfingar í hendi
  • Stígandi áseta / skástæður
4 tími
  • Upphitun, baugavinna, vinna í hendi
  • Baugavinna í hendi/stækka og minnka baug
  • Framfótasnúningur
  • Tölt
5 tími
  • Upphitun, baugavinna, vinna í hendi
  • Krossgangur
  • Stökkþjálfun
6 tími
  • Upphitun, baugavinna, vinna í hendi
  • Undirbúningur fyrir sniðgang/vinna í hendi
7 tími
  • Upphitun, baugavinna, vinna í hendi
  • Sniðgangur
  • Stytt fet
  • Söfnun
8 tími
  • Upphitun, baugavinna, vinna í hendi
  • Stutt fet
  • Söfnun
  • Upprifjun fyrri tíma

Ásetunámskeið fyrir nemendur á keppnisnámskeiði

Kennt einu sinni í viku í fyrirlestrarformi, hópvinna, verklegum æfingum með og án hests.

Lýsing á námskeiði:
Nemendur læra um mikilvægi ásetunnar og hvernig hægt er að bæta hana í gegnum einfaldar æfingar með og án hests. Nemendur verða meðvitaðari um líkamsbeitingu sína og áhrif hennar á hestinn í reið. Farið er ítarlega í ásetu og ábendingar knapans. Nemendur mæta með eigin hesta og fá m.a. reynslu af hringteymingu. Aðalatriðið er að hestarnir séu rólegir og traustir og að óhætt sé að fara berbakt á bak.


Að loknu námskeiði á nemandinn að:
geta fylgt hreyfingum hestsins mjúklega eftir í mismunandi ásetu á mismunandi gangtegundum. 
hafa öðlast betra jafnvægi á hestbaki.
finna fyrir aukið sjálfstraust og vera öruggari með sig á hestbaki.
þekkja hestinn sinn betur.
Kennari: Line Nørgaard


Kennarar:
Súsanna Ólafsdóttir

Reynir Örn Pálmason

Verð kr. 40.000,-


Skráning This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Skráningarfrestur til 11. janúar 2012

 

Knapamerki - 3. stig

Stig 3.

Kennari: Line Noorgard

Verð kr. 37.000,- 

Skráning This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. 

Skráningarfrestur til 15. janúar 2012

 

 

Knapamerki - 4. stig

Stig 4.
Á þessu stigi á nemandinn að hafa þekkingu á eftirfarandi þáttum:
•    Markmiðssetningu og hugþjálfun
•    Réttri líkamsbeitingu knapans og þjálfun hans
•    Þekkja helstu staðreyndir er lúta að heilbrigði og heilsufari hesta
•    Þekkja helstu staðreyndir er lúta að umhirðu fóta og járningum
•    Þekkja vel mismunandi þjálfunarstig og hugtök þeim tengd
•    Þekkja vel æfingar er lúta að því að bæta jafnvægi hestsins og skilja hvað liggur þeim til grundvallar
o    Stöðvun
o    Hömlun
o    Að stytta og lengja rammann
•    Þekkja grundvallaratriði hringteyminga og teyminga á hesti

Verklega á knapinn að hafa vald á eftirfarandi þáttum:
•    Mjög gott vald á lóðréttri og stígandi ásetu og gott jafnvægi á baki hestsins
•    Hafa nákvæmt og næmt taumhald
•    Geta riðið réttan krossgang til beggja hliða í góðu jafnvægi
•    Hafa gott vald á baugavinnu og reiðleiðum á vellinum á feti, tölti/brokki og stökki
•    Geta riðið gangskiptingar markvisst og af nákvæmni
•    Geta látið hestinn stöðva, bíða eftir ábendingu frá knapanum og fara rétt af stað í góðu jafnvægi
•    Hestur og knapi séu spennulausir, í andlegu og líkamlegu jafnvægi

Verð kr. 44.000,- 

Skráning This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. 

Skráningarfrestur til 11. janúar 2012

 

 

Öll námskeið eru auglýst með fyrirvara um næga þátttöku og jafnframt með fyrirvara um innsláttarvillur í auglýsingatexta.

Undirflokkar

  • Fræðslunefnd - námskeið
  • Æskulýðsnefnd - námskeið

    Hestamannafélagið Hörður í Mosfellsbæ hefur um langt árabil haldið uppi öflugu æskulýðsstarfi svo eftir hefur verið tekið og fékk félagið m.a. Æskulýðsbikarinn sem veittur var af Landssambandi hestamannafélaga til Harðar haustið 2011. Þessi vetur mun ekki verða undantekning þar á og hefur nú verið sett upp úrval af námskeiðum fyrir yngri kynslóðina. Er það allt frá námskeiðum fyrir yngstu byrjendurna upp í Knapamerkjanámskeiðin sem veita djúpa og yfirgripsmikla þekkingu á hestum og starfi í kringum þá. Æskulýðsnefnd hestamannafélagsins Harðar í Mosfellsbæ er nú að fara af stað með eftirtalin námskeið: