- Nánar
-
Skrifað þann Mánudagur, febrúar 26 2018 10:50
-
Skrifað af Sonja
Ágætu Harðarfélagar
Helgin var viðburðarrík hjá okkur Harðarmönnum. Veðrið lék sér að okkur eins og svo oft í vetur. Reiðleiðir okkar illa farnar eftir rigningarnar, Blikastaðanesið þó heldur skárra. Þó er Tungubakkahringurinn sjálfur ágætur, þ.e. ef hægt er að komast á hringinn. Spölurinn frá hesthúsahverfinu er nánast ónýtur. Flest rennslisrörin standa ber. En farið verður í viðgerðir í dag. Þarf að keyra í þetta talsverðu efni.
Árshátíðarmótið tókst vel. Mótanefndin er að standa sig mjög vel. Léttur andi og skemmtilegt að vera með vinninga.
Árshátíðin var mjög vel heppnuð. Maturinn einstaklega góður, jafnvel miðað við Hadda. Hélt að hann gæti ekki toppað sjálfan sig. Snjólaug uppistandari var svo fyndin að salurinn grenjaði af hlátri, annállinn var mjög góður og Hlynur Ben hélt uppi miklu stuði fram eftir nóttu. Árshátíðarnefndin stóð sig vel og eiga þau þakki skildar. Líklega ein besta árshátíð félagsins.
kv
HákonH
- Nánar
-
Skrifað þann Mánudagur, febrúar 26 2018 10:49
-
Skrifað af Sonja
Við viljum bara minna á að umsóknarfrestur til að sækja um Youth-Cup rennur út 1.mars næstkomandi.
Hér er linkur á auglýsinguna og þar er linkur á umsóknareyðublaðið
https://www.lhhestar.is/is/frettir/opid-fyrir-umsoknir-a-feif-youth-cup
- Nánar
-
Skrifað þann Fimmtudagur, febrúar 22 2018 10:20
-
Skrifað af Sonja
NOKKRIR MIÐAR EFTIR
VERÐ aðeins 7.500.- kr.
Til að nálgas miða vinsamlegast hafið samband við Önnu Lísu gsm: 8620692 eða This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Matseðill
Forréttur: Humarsúpa.
Aðalréttur: Sinnepshjúpaður lambavöðvi, gljáð kalkúnabringa, gradineraðar kartöflur, hvítlauksristað kartöflusmælki, spergilkál með parmesan, grænmetis ragú, tómatssalat og ferskt salat.
Eftirréttur: Kaffi og súkkulaðikaka.
Snjólaug Lúðvíksdóttir fer með gamanmál
Hinn stórskemmtilegi gullmoli Hlynur Ben spilar fyrir söng og dansi
Búast má við miklu fjöri á þessari árshátíð
sem engin ætti að missa af
- Nánar
-
Skrifað þann Miðvikudagur, febrúar 21 2018 19:55
-
Skrifað af Sonja
Ágætu Harðarfélagar. Ætlun mín er að birta reglulega frétta- og hugleiðingarpistla til upplýsinga fyrir félagsmenn.
Af framkvæmdum: Búið er að setja upp loftræstikerfi í reiðhöllinni og að sögn þeirra sem nota höllina mest, er allt annað og miklu betra loft í höllinni. Þörf var á, því loftið var oft mjög þungt og þegar heitt var úti var þetta „einsog að ríða í gróðurhúsi“ eins og einhver nefndi. Höllin lá líka undir skemmdum sökum raka. Elementið í hitakerfinu sprakk sl föstudag og er unnið að viðgerð. Verið er að hanna nýtt hitakerfi fyrir höllina og líklega verður farið í framkvæmdir í sumar eða næsta haust.
Gólfið í reiðhöllinni skilst mér að sé í ágætu lagi núna, en sýnist sitt hverjum. Ég er búinn að fá ca 30 tillögur um önnur og betri efni frá því að ég tók við sem formaður. Við erum alltaf að reyna að gera betur og m.a. fylgjumst vel með því sem er að gerast hjá félögunum hér í kring. Sprettarar eru búnir að skipta amk 6 sinnum um gólf og enn eru skiptar skoðanir um ágæti gólfsins þar.
Búið er að jafna út og keyra efni í planið norðan við reiðhöllina. Einnig er búið að stækka verulega kerrustæðið og í undirbúningi er að afmarka stæði fyrir kerrur og verða stæðin síðan leigð út til félagsmanna gegn vægu gjaldi. Þannig „ætti“ viðkomandi sitt stæði og gæti gengið að því vísu þó hann skreppi frá.
Á vormánuðum verða settar upp snjógildrur og þakrennur á höllina. (náðist ekki fyrir veturinn) Í leiðinni verður gert við leka á þakinu og sett upp ljós á norðurgaflinn.
Um næstu helgi verður aðalhátíð okkar Harðarmanna, árshátíðin. Hvet ég alla félagsmenn til að mæta og skemmta sér og öðrum.
Hestamannafélgið Hörður er þekkt fyrir góðan félagsanda. Sínum það í verki með góðri mætingu.
Meira síðar........
kv
Hákon form
es Ef þið eruð með ábendingar eða fyrirspurnir, sendið þá á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. merkt til stjórnar.