- Nánar
-
Skrifað þann Miðvikudagur, desember 16 2020 20:02
-
Skrifað af Sonja
Aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn 14. janúar nk.
Fundurinn verður haldinn í Harðarbóli og hefst kl 20.00.
Félagsmenn eru hvattir til þess að mæta.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundatstörf samkvæmt 5. gr félagsins.
Dagskrá aðalfundar skal vera: Formaður setur fund og tilnefnir fundarstjóra og fundarritara
Formaður flytur skýrslu stjórnar
Gjaldkeri skýrir reikninga félagsins og kynnir 9 mán. Milliuppgjör
Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga félagsins
Reikningar bornir undir atkvæði
Fjárhagsáætlun næsta árs og umræður
Árgjald ákveðið
Lagabreytingar
Kosningar samkvæmt 6. grein þessara laga
Önnur mál
Fundarslit
Stjórnin
- Nánar
-
Skrifað þann Mánudagur, desember 14 2020 15:55
-
Skrifað af Sonja
https://www.lhhestar.is/is/frettir/enginn-titill-19
Á næstunni mun stjórn Landssambands hestamannafélaga skipa í nefndir sambandsins til næstu tveggja ára.
Nefndarstörf eru undirstaðan í öllu starfi LH og mikilvægt að fá öfluga sjálfboðaliða sem eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum.
Ef þú ert tilbúin/n til að starfa í nefnd hjá LH þá sækir þú um á sértöku umsóknareyðublaði.
Nefndirnar sem um ræðir eru:
Aganefnd
Hlutverk aganefndar er að fjalla um kærur og mál sem upp koma á mótum innan vébanda LH. Aganefnd fjallar einnig um skýrslur yfirdómnefnda móta og ákvarðar refsingu fyrir brot á keppnisreglum og reglugerðum LH.
Keppnisnefnd
Keppnisnefnd fjallar um mál sem stjórn LH vísar til hennar en hefur að öðru leyti frumkvæðisrétt að málefnum sem undir hana heyra. Hlutverk nefndarinnar er að endurskoða reglugerðir LH er varðar keppnir og koma með tillögur að breytingum ef þörf er á. Nefndin skal jafnan hafa hliðsjón af reglum ÍSÍ og öðrum reglugerðum sem LH hefur samþykkt. Þá skal nefndin sjá um að samþykktir landsþinga falli að lögum og reglum LH.
Laganefnd
Hlutverk laganefndar er að sjá til þess að breytingar á lögum og reglum sem samþykktar eru á FEIF-þingi og landsþingi LH séu rétt færð inn í lög og reglur LH. Laganefnd skal fara yfir tillögur til landsþings og nefndin er stjórn til halds og trausts þegar kemur að túlkun laga og reglna FEIF og LH.
Landsliðsnefnd
Hlutverk landsliðsnefndar er að móta umgjörð um afreksmál LH og halda utan um landsliðshópa og hæfileikamótun LH. Nefndin er einnig fjáröflunarnefnd fyrir afreksstarf LH. Nefndin skipuleggur landsliðsferðir og fylgir eftir landsliðum Íslands í hestaíþróttum bæði á HM og NM.
Mannvikjanefnd
Hlutverk mannvirkjanefndar er að veita ráðgjöf um gerð mannvirkja sem notuð eru við hestaíþróttir og hestamennsku almennt. M.a. keppnis- og æfingavelli, reiðvegi og reiðhallir.
Menntanefnd
Hlutverk menntanefndar er m.a. að fylgja eftir þjálfarastigum LH í samstarfi við Háskólann á Hólum. Nefndin heldur utan um endurmenntunarnámskeið fyrir reiðkennara og staðfestir virka reiðkennara til FEIF. Nefndin er tilltölulega ný og á enn eftir að móta starf sitt.
Ferða- og samgöngunefnd
Sinnir hagsmunagæslu varðandi reiðvegi og samgöngur hestamanna sem og að úthluta reiðvegafé til hestamannafélaganna. Nefndin er jafnframt skipuð af formönnum reiðveganefnda hvers svæðis en landinu hefur verið skipt upp í sjö svæði sem hvert hefur sína reiðveganefnd með fulltrúum félagannna á hverju svæði.
Tölvunefnd
Hlutverk tölvunefndar er m.a að halda utan um SportFeng og LH kappa, þróun þessara kerfa sem og námskeiðahald vegna SportFengs.
Æskulýðsnefnd
Hlutverk Æskulýðsnefndar er að efla fræðslu um æskulýðsmál og gæta hagsmuna æskunnar í íþróttinni, auka fræðslu æskulýðsfulltrúa um allt land og styðja við þá í starfi. Nefndin tilnefnir fulltrúa, í samstarfi við landsliðsnefnd, sem fylgir ungmennum á HM, NM og önnur stórmót. Nefndin sér einnig um val þátttakenda á FEIF Youth Cup og Youth Camp.
Öryggisnefnd
Öryggisnefnd LH hefur ekki verið starfandi í nokkur ár en nú stendur að endurvekja hana. Verkefni öryggisnefndar verður að tryggja öryggi á reiðvegum og annars staðar þar sem hestamennska er stunduð. Nefndin verður einnig tengiliður stjórnar LH við opinbera aðila og sér um að fræða hinn almenna hestamann um hvernig hægt er að bæta öryggi í nærumhverfi.
Ef þú ert tilbúin til að starfa í nefnd hjá LH þá sækir þú um á umsóknareyðublaði
- Nánar
-
Skrifað þann Föstudagur, desember 11 2020 15:39
-
Skrifað af Sonja
Undanþágubeiðni LH um opnun reiðhalla hefur verið samþykkt 😊
https://www.lhhestar.is/is/frettir/notkun-reidhalla-heimil-med-takmorkunum
Að hámarki 8 manns mega vera inni í höllinni hverju sinni í 30 mín með hvern hest.
Knapar skulu gæta skal vel að persónulegum sóttvörnum og spritta hendur og skaft á skítagafli þurfi þeir að nota hann.
Knapar sem sýna minnstu flensueinkenni mega ekki alls ekki koma í höllina.
Sýnum ábyrgð og virðum þessar reglur, annað er brot á sóttvarnarlögum. 😁
- Nánar
-
Skrifað þann Föstudagur, desember 11 2020 11:53
-
Skrifað af Sonja
Ágætu félagar!
Opið er fyrir umsóknir úr Ferðasjóði íþróttafélaga fyrir keppnisferðir á fyrirfram ákveðin styrkhæf mót ársins 2021. Frestur til að skila inn umsóknum er til miðnættis mánudaginn 11. janúar 2021.
Umsóknarferlið í ár er með sama hætti og áður en þar sem mótahald á árinu 2020 var afar óhefðbundið vegna afleiðinga Covid-19 þá gæti komið til breytinga á úthlutunum þannig að heildarframlag sjóðsins verði ekki allt til úthlutunar. Allar breytingar skulu unnar í samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið og staðfestar af því.
Umsóknir eru sendar í gegnum rafrænt umsóknarsvæði sjóðsins sem má finna með því að smella hér.
Öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sótt um styrki í sjóðinn vegna keppnisferða innanlands á fyrirfram ákveðin styrkhæf mót ársins 2020. Áætlað er að greiða út styrki úr sjóðnum í febrúar/mars 2021. Við stofnun umsóknar fær umsækjandi senda vefslóð á uppgefið netfang tengiliðar, sem nýtist sem lykill inn á viðkomandi umsókn þar til umsókn er send.
Umsækjendur eru hvattir til að vanda frágang umsókna til að auðvelda og einfalda úrvinnslu þeirra. Listi yfir styrkhæf mót opnast í kerfinu þegar búið er að stofna umsókn.
Ef nánari upplýsinga er þörf, vinsamlegast hafið samband við undirritaða í síma 514 4000 eða í gegnum netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..
Halla Kjartansdóttir skrifstofustjóri ÍSÍ This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.