TUNGUBAKKAHRINGURINN
- Nánar
- Skrifað þann Mánudagur, nóvember 17 2014 12:58
- Skrifað af Jóna Dís Bragadóttir
Tungubakkahringurinn verður lokaður vegna framkvæmda næstu tvær vikurnar.
Tungubakkahringurinn verður lokaður vegna framkvæmda næstu tvær vikurnar.
Aðalfundur Hestamannafélagsins Harðar var haldinn 5.nóveber s.l. Á fundinn mættu um 50 manns. Fundurinn fór vel fram og voru málefnalegar umræður. Lagabreytingar sem lágu fyrir fundinum voru samþykktar. Stjórnin var endurkjörin og eru því engar breytingar á henni.
Stjórn Harðar þakkar Harðarfélögum fyrir komuna og vonast eftir ánægjulegu stamstarfi á komandi starfsári.
Ársskýrslan 2013-2014 er komin á heimasíðu Harðar
Stjórn Harðar
Bókleg kennsla í Knapamerkjunum er að byrja í vikunni.
Knapamerki 3 börn/unglingar, þriðjudaginn 4.nóvember kl 17
Knapamerki 4 börn/unglingar, fimmtudaginn 6.nóvember kl 17
Kennt er í Harðarbóli
Kv Sonja Noack yfirkennari
LÖG HESTAMANNAFÉLAGSINS HARÐAR
1. grein
Nafn félagsins er: Hestamannafélagið Hörður. Félagssvæðið nær yfir Mosfellsbæ, Kjalarnesog Kjós.Heimili og varnarþing er Mosfellsbær.Félagið er aðili að UMSK, LH og ÍSÍ og háð lögum og samþykktum íþróttahreyfingarinnar.
Í félaginu er starfandi sem sér deild félag hesthúsaeigenda sem hefur það að markmiði að gæta sameiginlegra hagsmuna eigenda hesthúsa sem byggð hafa verið eða kunna að vera byggð á félagssvæði Hestamannafélagsins Harðar í Mosfellsbæ samanber nánar ákvæði 13.gr. laga þessara.