- Nánar
-
Skrifað þann Miðvikudagur, september 30 2015 14:05
-
Skrifað af Jóna Dís Bragadóttir
Eftirfarandi stigatafla var samþykkt á stjórnarfundi 22.sept. 2015. Stigataflan er mikið endurbætt og tekið var mið af nýrri stigatöflu hjá Hestamannafélaginu Spretti og þökkum við þeim fyrir.
Hestamannafélagið Hörður í Mosfellsbæ
Val á afreksknöpum sem fá viðurkenningar hjá Hestamannafélaginu Herði.
Nánar...
- Nánar
-
Skrifað þann Miðvikudagur, september 23 2015 18:02
-
Skrifað af Jóna Dís Bragadóttir
Minnum á hina árlegu HROSSAKJÖTSVEISLU sem haldin verður í Harðarbóli 31.október. Endilega takið daginn frá. Síðast fengur færri miða en vildu. Nánar auglýst síðar.
- Nánar
-
Skrifað þann Miðvikudagur, september 23 2015 16:55
-
Skrifað af Jóna Dís Bragadóttir
Fimmtudaginn 1. okt 2015 verður uppskeruhátíð hjá æskulýðsnefnd.
Við ætlum að bjóða uppá mat og auðvitað eitthvað sprell og afhenda viðurkenningar fyrir veturinn. Mæting stundvíslega 18:30 því það er stíf dagsskrá hjá okkur.
Hlökkum til að sjá ykkur hress og kát
Nefndin.
- Nánar
-
Skrifað þann Þriðjudagur, september 22 2015 09:00
-
Skrifað af Jóna Dís Bragadóttir
Kæru félagar!
Það vantar alltaf gott fólk til að starfa í nefndum á vegum félagsins. Ef ykkur langar að starfa í einhverri nefnd endilega sendið póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og tilgreinið nefndina sem þið viljið starfa með og við reynum að koma til móts við óskir.
Einnig væri gaman að fá hugmyndir að einhverju nýju sem við getum gert í vetur.