- Nánar
-
Skrifað þann Þriðjudagur, janúar 14 2014 16:00
-
Skrifað af Jóna Dís Bragadóttir
Nú stendur fyrir dyrum kjör um hverjir hljóti sæmdarheitið íþróttamaður og íþróttakona Mosfellsbæjar 2013. Í fyrra var í fyrsta skipti tekin upp sú nýjung að íbúar geta tekið þátt í kjörinu ásamt aðal og varamönnum Íþrótta og tómstundanefndar. Íbúar Mosfellsbæjar kjósa íþróttafólk ársins inni á íbúagáttinni þar sem búið er að bæta inn valmöguleika sem heitir „Kosningar“
Hægt verður að greiða atkvæði frá 9. - 19. janúar. Úrslit verða kynnt fimmtudaginn 23. janúar kl. 19 í Íþróttamiðstöðinni að Varmá.
Hér má sjá nöfn þeirra einstaklinga sem tilnefndir eru fyrir árið 2013. Þar er hægt að lesa nánar um íþróttafólkið og allt um helstu afrek þeirra á árinu. Útnefndir til íþróttamanns og konu Mosfellsbæjar 2013
Hægt er að kjósa með því að fara inn í íbúagáttina hér.
Athugið að velja skal eina konu og einn karl.
- Nánar
-
Skrifað þann Þriðjudagur, janúar 14 2014 14:58
-
Skrifað af Jóna Dís Bragadóttir
Í dag þriðjudag frá kl. 18.00 - 19.00 verðum við að selja miða á þorrablótið á laugardaginn í Reiðhöllinni. Einnig verður hægt að fá lykla að Reiðhöllinni.
- Nánar
-
Skrifað þann Mánudagur, janúar 13 2014 15:15
-
Skrifað af Jóna Dís Bragadóttir
Þið sem hafið verið að skrá ykkur í félagið og/eða úr því verðið að sýna smá biðlund þar sem við erum að læra á kerfið. Kröfur verða teknar út og eða senda í bankann eins fljótt og við getum.
- Nánar
-
Skrifað þann Mánudagur, janúar 13 2014 09:15
-
Skrifað af Jóna Dís Bragadóttir
LH í samvinnu við GDLH og HÍDÍ stendur fyrir dómararáðstefnu á fimmtudaginn 16. janúar n.k. kl. 17.00 í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal. Við biðjum ykkur um að koma þessum boðum til ykkar félagsmanna og setja á vefsíður ykkar félaga ef það á við.
Nánar um ráðstefnuna hér: http://www.lhhestar.is/is/moya/news/domararadstefna