Kótilettukvöld Harðar
- Nánar
- Skrifað þann Fimmtudagur, febrúar 10 2022 14:01
- Skrifað af Sonja
Kótilettukvöld Harðar verður haldið í Harðarbóli 26.febrúar næstkomandi.
Nánar auglýst síðar!
Kótilettukvöld Harðar verður haldið í Harðarbóli 26.febrúar næstkomandi.
Nánar auglýst síðar!
Stjórn LH hefur ákveðið að verðlauna LH-félaga ársins.
LH – félagi ársins eru hvatningarverðlaun fyrir sjálfboðaliða og félaga hestamannafélaga sem vinna fórnfúst og óeigingjarnt starf í þágu hestamennskunnar.
Óskað er eftir að hvert og eitt hestamannafélag tilnefni félaga ársins innan sinna raða og sendi tilnefninguna til LH ásamt rökstuðningi fyrir valinu. Einnig eru félögin hvött til að verðlauna þann einstakling sem verður fyrir valinu hjá þeim sem félaga ársins.
Stjórn Harðar óskar eftir ábendingum frá félagsmönnum. Skilafrestur er til 25.febrúar á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Skipuð hefur verið nefnd innan LH sem velur fimm félaga úr innsendum tilnefningum, sem kosið verður um í netkosningu á vef LH um miðjan mars/byrjun apríl.
Í nefndinni sitja:
Berglind Karlsdóttir, framkvæmdastjóri LH
Dagbjört Hulda Guðbjörnsdóttir, formaður æskulýðsnefndar
Einar Gíslason, formaður keppnisnefndar
Gréta V. Guðmundsdóttir, stjórnarmaður í LH
Lilja Björk Reynisdóttir, varamaður í stjórn LH
Þegar úrslit liggja fyrir verða LH-félaga ársins veitt vegleg verðlaun og allir fimm útnefndir fá viðurkenningu.
Vegna veðurs var frestað kennslunni seinni partinn í dag - svo höllinn er öll opið milli 16-23 :)
Frestunartilkynning var sent út í sportabler app.