- Nánar
-
Skrifað þann Mánudagur, desember 11 2023 14:46
-
Skrifað af Sonja
Þrif á reiðtygi + Jólasmáköku/kakópartý - Sunnudagur 17. desember kl. 14-16 - Æskulýðsnefnd
Við ætlum að hittast í reiðhöllinni næstkomandi sunnudag (kl. 14-16).
Gerum reiðtygin klár fyrir útreiðar vetrarins, drekkum kakó og borðum jólasmákökur saman.
Endilega að koma með fötu en svampar, tuskur, sápa og olía er á staðnum.
Ef
einhver er í þrifstuði eða einfaldlega vill læra að hirða reiðtygi rétt, en er ekki með eigið reiðtygi, þá er hægt að heyra í Sonju og fá hnakka og beisli í láni hjá reiðskóla hestasnilld (Sonja 865 9651).
Vonumst til að sjá sem flesta!
- Nánar
-
Skrifað þann Þriðjudagur, desember 05 2023 16:44
-
Skrifað af Sonja
🌲🌲🌲
Hestamenn í Herði 60+
Aðventukvöld í Harðarbóli
fimmtudaginn 14. desember 2023.
Húsið opnar kl. 19:00
Borðhald hefst kl. 19:30
🎹
Guðmundur á Reykjum þenur nikkuna í anddyrinu og kemur okkur í rétta gírinn.
Matseðill
Aðlaréttur
Jólahangikjöt borið fram með kartöflum í hvítri sósu, rauðkáli, grænum baunum og laufabrauði
Eftirréttur
Hinn margrómaði jólaís
" ala" Þuríður á Reykjum.
🍷🍺🍷
Opinn bar og drykkir seldir á sanngjörnu verði.
Þeir sem vilja geta tekið með sér sína drykki.
Hátíðardagskrá.
Félagar úr Karlakór Kjalnesinga.
Einsöngvari Jón Magnús Jónsson.
Undirleikari Andri Gestsson
🎸🎹
Hákon Hákonarson og Kristín Ingimarsdóttir
stilla saman strengi og stjórna fjöldasöng
eins og þeim einum er lagið.
Verð kr. 5000
posi á staðnum.
Tilkynnið þátttöku hjá Sigríði Johnsen
á netfangiðThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
eða í síma 896-8210
í síðasta lagi föstudaginn 8.des.
🌲🌲🌲
Með góðum kveðjum og tilhlökkun að hitta ykkur öll í jólaskapi
🙂😘🙂
Lífið er núna njótum þess
Hákon, Gunnar, Kristín, Sigríður, Þórdís, Þuríður.