Nefndakvöld 2013

Nefndakvöld Harðar verður haldið 12.janúar 2013

Kæru Harðarfélagar.

Nefndarkvöld verður haldið í Harðarbóli 12.janúar 2013.  Þangað er boðið Harðarfélögum sem starfa í nefndum á vegum félagsins árið 2013.  Hátíðin hefst kl:19:00. Formenn nefnda eru beðnir um að hafa samband við sína nefnd og tilkynna síðan þátttöku til This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Kveðja Jóna Dís og Ragna Rós

 

Hin árlega áramótareið

Kæru Harðarfélagar.

Þau heiðurshjón Haddý og Nonni í Varmadal bjóða okkur Harðarfélögum að sækja þau heim á gamlársdag. Lagt verður af stað úr naflanum kl 12:00 og heim um 15:30. Léttar veitingar verða í boði.

Jóna Dís 

Formaður

Kæru Harðarfélagar

Kæru Harðarmenn og konur. Ég vil þakka stuðninginn sem mér vara veittur til að gegna formennsku í félaginu okkar. Félagið hefur á að skipa mikinn fjölda fólks sem starfar af miklum heilindum fyrir félagið, leggur á sig mikla vinnu og allt er þetta sjálfboðavinna, með þessu frábæra fólki verður gaman að vinna með. Ég vil líka minna fólk á að alltaf er hægt að bæta við fólki og allir eru velkomnir til að starfa með okkur. Ef ykkur liggur eitthvað á hjarta ekki hika við að hafa samband, hvort heldur á fésinu, hægt að senda mér einkaskilaboð, tölvupóst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it., eða bara slá á þráðinn. Kveðja Jóna Dís Bragadóttir.

Dagskrá formannsfrúarreiðinnar 2012

 

1.       (Föstudagur 25. maí:  Hestum og reiðtygum komið á Skógarhóla)

2.       Laugardagur 26. maí:   Kjarngóður morgunverður í Harðarbóli kl. 07.15, og hver smyr nesti  fyrir sig til  dagsins.  Hver sér um sín drykkjarföng

3.        Kl. 8.00, keyrt  á Skógarhóla.  Smalað úr haganum og gert klárt.

4.       Kl. 09.30 hestaskál í boði Formanns

5.       KL. 10.00 Stigið á bak og haldið af stað.

6.        Í Kjósaskarði  verður lengsta áningin.  Þar bíður okkar hressing,  kaffi, kakó, vatn og þessháttar.  Kerra verður á staðnum.  Það er upplagt fyrir þær konur sem ætla að ríða helminginn að koma inn hérna.

7.       Síðasta stopp er í Viðiodda, þar sem við þéttum hópinn og komum í hús saman með LILLU í broddi fylkingar.

8.       Svo er að ganga frá hestum gefa og hlúa að þeim.

9.       Mætum svo beint  í Harðarból (í ferðagallanum,  EKKI FARA HEIM OG PUNTA SIG).  Þar skálum við fyrir okkur sjálfum og öllum sem lögðu okkur lið við að láta ferðina ganga vel.  Síðan er  VEISLA AÐ HÆTTI GUNNU Í DALSGARÐI. 

10.   Matseðillinn hljómar svona:  Lamba prime með ofnbökuðu rótargrænmeti og sætum karteflum, salat og sósa. Í eftirrétt er:  Frönsk súkkulaðikaka með jarðarberjum frá Gísla í Dalsgarði og kaffi.  Hver kemur með sinn borðdrykk eftir smekk.  Undir borðum verður svo verðlaunaafhending og samsöngur, Guðjón og Hákon ætla að spila og syngja með og fyrir okkur. Síðan er gleð fram eftiri eins og hvern lystir.

Kær kveðja Anna Björk

Nefndarfundir og nefndarkvöld

Kæru félagar.

Stjórnin mun hitta allar nefndir félagsins þann fimmtudaginn 10. janúar 2013, formaður mun hafa samband við formenn nefndanna varðandi tímasetningu þann daginn.

Nefndarkvöld verður haldið í Harðarbóli þann 11. janúar 2013 kl:19:00. Þangað er boðið þeim nefndarmönnum sem munu starfa fyrir félagið næsta árið. Að venju munum við borða saman góðan mat og eiga notalega stund saman.

Kær kveðja 

Jóna Dís Bragadóttir

Formaður.

Ferðapunktar fyrir formannsfrúarreiðina 2012

Seinnipart á föstudeginum 25. maí, verður búið að útbúa haga með rúllum og vatni fyrir hesta á Skógarhólum ef einhverjar vilja.  Hver kona sér um að koma sínum hestum á staðinn.  Ef einhverjar  eru í vandræðum með kerrupláss verður flutningabíll til taks á laugardagsmorguninn.  Hann verður í Naflanum kl. 07.00, þá þarð að fara fyrst með hestana á bílinn svo koma í morgunmat. ÖLL reyðtygi NEMA HNAKKTASKA fara í kerrur eða flutningabílinn svo við komumst í sem fæsta bíla á laugardeginum.  Hnakktöskuna tökum við með í morgunmatinn í Harðarbóli og fyllum af nesti.

Nánar...

Íþróttamaður/kona Mosfellsbæjar 2012

Kæru félagar. Senn líður að kjöri íþróttamanns og íþróttakonu Mosfellsbæjar og því auglýsir stjórn Harðar eftir árangri Harðarmanna og kvenna á keppnisvellinum á árinu 2012 í fullorðinsflokkum. Vinsamlegast sendið upplýsingarnar annað hvort á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Kær kveðja

Jóna Dís Bragadóttir

Formaður