- Nánar
-
Flokkur: Beitar- og umhverfisnefnd
-
Skrifað þann Mánudagur, júní 20 2011 10:53
-
Skrifað af Super User
Þá getum við haldið upp á þjóðhátíðardaginn með því að sleppa hrossunum í
hagana. Beitarbanninu hefur verið aflétt og geta menn því farið með færleikana
á beit. Á það skal þó bent að víða er lítil spretta og má búast við beitin
endist stutt ef ekki eru gerðar sérstakar ráðstafanir. Skynsamlegt getur
verið að setja hey í hólfin þar sem lítið er sprottið og eins að setja hóflegan
fjölda í einu á stykkin. Þetta þarf hver og einn að meta og eins er hægt að
hafa samband við formann Beitarnefndar ef þörf er á ráðleggingum um hvað gera
skal.
Þetta ástand kennir okkur það að það eru ekki alltaf jólin í þessum efnum eins
og segja má að hafi verið undanfarin ár þegar gróður hefur verið fljótur til á
vorin og nánast allt að drukkna í grasi yfir sumarið. En vissulega getur
þetta breyst á skömmum tíma og nú virðist farið að hlýna og aðeins örlar á
vætu.
f.h. Beitarnefndar
Valdimar Kristinsson
s. 896 6753