- Nánar
-
Flokkur: Annað
-
Skrifað þann Miðvikudagur, mars 24 2004 12:00
-
Skrifað af Landsliðsnefnd
Stórsýning íslenska landsliðsins á ísnum í Egilshöllinni verður laugardaginn 10.apríl nk. Glæsilegir töltarar og stórfenglegir stóðhestar munu koma fram og gleðja landsmenn á frábæra svellinu í Egilshöllinni. Sportbitinn sér um ljúfar veitingar fyrir og eftir sýninguna.
Skemmtileg augnablik í hestaíþróttum verða sýnd á breiðtjöldum í anddyri og sal Sportbitans.
Nú sem aldrei fyrr ríður á að við hestamenn stöndum saman og styrkjum um leið landsliðið okkar og verðum öll þátttakendur í LEIÐINNI AÐ GULLINU!
Allur ágóði rennur beint til landsliðsins okkar.
Landsliðsnefnd