Aðalfundur afstaðinn

Aðalfundur Hestamannafélagsins Harðar var haldinn í Harðarbóli í kvöld, var ágæt mæting og fór fundurinn vel fram. Kosin var ný stjórn þar sem Þórhildur gaf ekki kost á sér í formennsku áfram. Einnig gengu úr aðalstjórn Einar Ragnarsson, Álfhildur Leifsdóttir og Edda Davíðsdóttir. Úr varastjórn gengu Pétur Jónsson og Ragnheiður Þórólfsdóttir. Ný stjórn er því svona: Guðmundur Björgvinsson formaður Halldór Guðjónsson Jóhann Þór Jóhannesson Páll Viktorsson Kolbrún Haraldsdóttir Guðjón Magnússon Þorvaldur Kristinsson Valdimar Kristinsson varastjórn Svanur Magnússon varastjórn Guðmundur Magnússon varastjórn Við óskum nýrri stjórn velfarnaðar í starfi.