- Nánar
-
Flokkur: Stjórnin
-
Skrifað þann Föstudagur, janúar 18 2008 09:43
-
Skrifað af Super User
Allar nefndir Harðar komu saman til samráðsfundar í Harðarbóli. Það var ný stjórn sem boðaði til fundarins, en á hann mættu fulltrúar frá nær öllum nefndum félagsins á milli 40 og 50 manns. Stjórn félagsins fór yfir það sem framundan er í stórum dráttum og nefndir sögðu frá því sem þær væru að gera. Það virðist vera að félagslífið verði með líflegra móti í ár ef marka má þann áhuga sem var á fundinum.