Hestakerru stolið á Kjalarnesi

Samskonar kerru og er hér á myndinni var stolið af Kjalarnesi fyrir um mánuði síðan. Um er að ræða... 4 hesta kerru af gerðinni Schram og er skráningarnúmer kerrunnar LN-100. Kerran er dökkgrá að lit með hvítu segli. Ef einhverjir hafa orðið kerrunnar varir vinsamlegast hafi samband í síma 8923042, 8920015 eða hafi samband við lögreglu.