Aðalfundur Harðar
- Nánar
- Flokkur: Stjórnin
- Skrifað þann Laugardagur, nóvember 12 2011 14:15
- Skrifað af Super User
Aðalfundur hestamannafélagsins Harðar verður haldinn í Harðarbóli 24. nóvember 2011 kl. 20:00
Efni fundarins:
- Venjuleg aðalfundarstörf
- Tillaga að lagabreytingu
- Önnur mál
6.grein
Stjórn félagsins skipa sjö manns. Stjórnin skiptir með sér verkum að
undanskildum formanni sem kosin er beinni kosningu. Skal hún kosin á
aðalfundi samkvæmt eftirfarandi reglum. Formaður skal kosin til eins árs
og getur verið endurkjörin þrisvar sinnum. Sex meðstjórnendur skulu
kosnir til tveggja ára þannig að þrír gangi úr stjórn ár hvert. Þrír
varastjórnarmenn til eins árs sem taka sæti í aðalstjórn eftir
atkvæðamagni.
Breyting
6. grein
Stjórnin skiptir með sér verkum að undanskildum formanni sem kosin er
beinni kosningu. Skal hún kosin á aðalfundi samkvæmt eftirfarandi
reglum.
Formaður skal kosinn til eins árs í senn.
Tíu meðstjórnendur skulu kosnir til tveggja ára þannig að fimm gangi úr stjórn ár hvert. Þá má þó endurkjósa.
Skýring:
Markmiðið með þessum lagabreytingum tvíþætt, Það fyrra er að formaður
geti setið lengur en í 4 ár. Það tekur tvö til þrjú ár fyrir nýjan
formann að ná tökum á starfinu, kynnast fólki innan kerfisins og öðlast
traust innan þess. Það er fyrst á fjórða ári sem róðurinn fer að
léttast. Ef sitjandi formaður er tilbúinn að leggja það á sig að vinna
áfram fyrir félagið og félagsmenn og aðalfundur óskar þess eindregið þá
er óeðlilegt að lagasetning félagsins banni það.
Annað er að það hefur tíðkast í að minnsta kosti áratug að bæði
aðalstjórn og varastjórn er boðuð á stjórnarfundi. Þar vinna allir saman
að málefnum félagsins og veitir ekkert af. Það virkar því illa að sumir
séu í aðalstjórn en aðrir í varastjórn. Einnig er það óþægilegt og
vandræðalegt að þurfa að biðja duglegan aðalstjórnarmann að víkja og
færa sig niður í varastjórn þar sem lög félagsins kveða svo um að þrír
þurfi að ganga úr stjórn ár hvert.