Hestaumferð í þéttbýli
- Nánar
- Flokkur: Stjórnin
- Skrifað þann Þriðjudagur, júlí 19 2011 14:39
- Skrifað af Super User
Stjórn Hestamannafélagsins Harðar barst ábending um þrjár unglingsstúlkur sem riðu upp Háholtið og beygðu inn Þverholtið framhjá KFC, bæði hnakk- og hjálmlausar og fóru svo yfir Vesturlandsveginn, upp á umferðareyju og þaðan inn á Reykjaveg. Daginn eftir sást aftur til stúlknanna á ferð um Víðiteiginn.
Stjórn Harðar harmar mjög að slíkt skuli gerast. Bæði er þessi athöfn stórhættuleg fyrir umræddar stúlkur sem og aðra vegfarendur og hestana sjálfa. Í Mosfellsbæ eru margar góðar reiðleiðir sem á að nota. Það er með öllu bannað að ríða eða reka hesta um götur eða göngustíga í þéttbýli bæjarins. Í þessu sambandi viljum við biðja foreldra að ræða við börn og ungmenni sín um hvað má og hvað má ekki.
Við getum ekki tekið til baka ef alvarlegt slys ber að höndum og rétt að minna á að við höfum bara einn líkama sem við þurfum að passa upp á og enginn hestamaður vill missa hestinn sinn í slysi, hvað þá að valda öðrum slysi. Brýnið það fyrir börnunum og sýnið fordæmi í reiðmennsku og notkun öryggisbúnaðar. Sjá bækling um hestaöryggi sem Landsamband hestamanna og VÍS hafa gefið út.
Einnig bendum við á lögreglusamþykkt fyrir Mosfellsbæ á slóðinni: http://mos.is/Samthykktirogreglur/Logreglusamthykkt/