- Nánar
-
Flokkur: Stjórnin
-
Skrifað þann Þriðjudagur, júní 21 2011 09:56
-
Skrifað af Super User
Nú er komið að því, fyrsta landsmót í 3 ár. Við hvetjum alla Harðarfélaga unga sem aldna að mæta á landsmót að Vindheimamelum í Skafafirði. Þetta verður stærsta landsmót sem haldið hefur verið hvað varðar fjölda skráðra hrossa og í ljósi þess að Landsmót frestaðist um ár vegna hóstans, þá búast menn við að sjá þarna gæðinga sem aldrey fyrr. Hörður verður með yfir 30 hesta í keppni. Við verðum með tjaldbúðir á afmörkuðu félagssvæði sem er sérstaklega vaktað og ætlast er til að ró sé komin á um miðnætti og bílaumferð óheimil eftir kl. 10.00 á kvöldin. Þarna verður fjölskylduvæn stemning eins og var á sama stað á Landsmótinu árið 2006. MÆTUM ÖLL OG HVETJUM OKKAR HESTA OG KNAPA