Minnispunktar f. Formannsfrúarreið 21. mai 2011
- Nánar
- Flokkur: Stjórnin
- Skrifað þann Miðvikudagur, maí 18 2011 18:10
- Skrifað af Super User
Hér eru helstu atriði sem var farið yfir á fundinum í gærkvöldi vegna ferðarinnar:
ATHUGA VEL JÁRNINGAR Á HESTUM
Það er gott að gefa hestunum vel að éta kvöldinu áður og snemma að morgni ferðadags (5-6 um morguninn) svo þeir séu vel étnir því það er engin beit á leiðinni. Áður en konur mæta í morgunverð í Harðarbóli kl. 7.30 setja þær ferðahesta útí gerði með merkta múla, RAUTT tape í faxi þess hests sem fer alla leið á Skógarhóla, HVÍTT í þá sem koma seinna í Kjósaskarð. ÖLL reiðtygi (NEMA HNAKKTASKA) og auka hlífðarföt í poka eða tösku við gerðið, það verður sótt á meðan við erum að borða. Við erum allar útivistarkonur og kunnum að klæða okkur eftir veðrinu, sem getur verið ansi fjölbreytt yfir einn dag, en mig langar að
að fara yfir það helsta: Hlý ullarnærföt, lopapeysan okkar, húfa undir hjálminn, hlýir vettlingar og auka til skiptanna af það blotnar jafnvel auka sokka, góð úlpa og skálmar, regngalli, varasalvi f. konu og hest, hestanammi til að gefa besta vininum okkar á áningastað, SECOND SKIN getur komið sér vel. Það sem þarf að vera í hnakktöskunni er gott nesti, megrun og mataraðhald á ekki við á ferðadag, við þurfum orku, vatnsflaska, baggabönd, skeifa, wc pappír og lítill peli með einhverju sem hlýjar ef okkur verður kalt.Það er mikilvægt að hver kona hugsi fyrir öllu sem hún þarf fyrir ferðina og sé sjálfbær. Eins og við töluðum um á fundinum er Lilla fararstjóri og stjórnar reiðinni, ríður fremst og við fylgjum 3-4 hestlengdum á eftir henni. Hún ræður hvar er áð og hvað lengi. Þegar við áum er mikilvægt að huga strax að hesti og reiðtygjum, pissa, borða og gera klárt það sem þarf að laga áður en lagt er af stað næst, og slappa svo af, þangað til Lilla kallar JÆJA, því næsta kall verður HNAKKUR, þá þurfa allar konur að stíga á bak, það er frekar tillitslaust að láta 35 mannas bíða eftir sér. Þetta er allt okkur til þæginda svo við komum til baka á þokkalegum tíma því leiðin er 39.5 km og við viljum ekki vera lengur en 6-8 tíma. Ég vona að ég hafi ekki gleymt einhverju mikilvægu ef svo er endilega láti mig vita. Ég ætla að setja inn ferðahnitin frá Lillu hér fyrir neðan.
Hlakka svo mikið til að fara þessa leið með ykkur öllum, GÓÐA FERÐ ;-) KOMUM HEILA OG GLAÐAR HEIM
Bestu kveðjur, Anna Björk, 894-5103
Skógarhólar Brúsastaðir 5.2 km Aðrar leiðir tilviðmiðunar:
Brúsastaðir Einiberjaflöt 3.2 km Blikastaðahringur 6.6 km
Einiberjaflöt Selkot 3.8km Flugvallahringur 3.5 km
Selkot Kjósaskarð 5.9 km Hörður-Laxnes-Hörður 13.0 km
Kjósaskarð Stardalur 5.0 km Mosefllsdalur hringur 14.0 km
Stardalur Skeggjastaðir 4.3 km Hörður-Fákur um
Skeggjastaðir Víðioddi 5.8 km Korpúlfst-Hörður 25.6 km
Víðioddi Hörður 3.0 km