Ágætu Harðarfélagar og Hesthúseigendur !!!!!!
- Nánar
- Flokkur: Stjórnin
- Skrifað þann Föstudagur, maí 06 2011 10:51
- Skrifað af Super User
Nú ætlum við að taka til hendinni, ætlunin er að taka til í kringum hverfið og með reiðleiðum. Við ætlum að mæta kl. 10 á laugardaginn 7. maí í Harðarbóli. Reiknað er með að þetta taki um tvo tíma en því fleiri sem mæta því fyrr lýkur verkinu. Vonumst við að sem flestir mæti því öll viljum við hafa hreint og snyrtilegt í kringum okkur. Einnig viljum við benda þeim á sem eru með rúllur eða bagga við hesthús sín (hvað þá annað) að fjarlægja það fyrir sumarið.
Léttar veitingar að verki loknu.
Umhverfisnefnd og Hesthúseigandafélagið