Fjölskyldustemning á stórsýningu Hestadaga
- Nánar
- Flokkur: Stjórnin
- Skrifað þann Föstudagur, apríl 01 2011 10:27
- Skrifað af Super User
Föstudagskvöldið 1.apríl kl 20:00 blása hestamannafélögin
á höfuðborgarsvæðinu í lúðra og sameinast um að halda fjölskylduvæna og
hressilega sýningu í Reiðhöllinni í Víðidal, þar sem fjölbreytt skemmtun verður
í boði og að sjálfsögðu verður íslenski hesturinn í aðalhlutverki. Gestir munu
fá að fylgjast með börnum og unglingum sýna gæðinga sýna með stolti, ungmenni
og fullorðnir sýna bæði klárhross og alhliðahross og að auki fá gestir innsýn í
hluta af menntakerfi hestamanna, nefnilega Knapamerkin.
Miðaverð er einungis kr. 1000 og frítt fyrir 13 ára og yngri.
Missið ekki af þessu, sjáumst í Reiðhöllinni í Víðidal!