Frábær vildarkjör - forsala aðgöngumiða á LM 2010 hafin
- Nánar
- Flokkur: Stjórnin
- Skrifað þann Laugardagur, febrúar 27 2010 02:54
- Skrifað af Super User
Forsala aðgöngumiða er hafin á Landsmót hestamanna 2010, sem fer fram á Vindheimamelum í Skagafirði dagana 27.júní – 4.júlí. Forsalan fer fram rafrænt á slóðinni www.landsmot.is. Söluferlið er einfalt og er væntanlegur landsmótsgestur leiddur í gegnum ferlið skref fyrir skref.
Frábær vildarkjör eru í boði fyrir félaga í aðildarfélögum Landssambands hestamannafélaga og Bændasamtökum Íslands og verulegur afsláttur veittur sé miði keyptur í forsölu. Afsláttur af fullu miðaverði í forsölu er allt að 25% og að auki fá félagar í LH og Bí 25% afslátt. Með þessu móti er hægt að lækka verð á vikupassa um þúsundir króna. Hver félagi í LH og BÍ getur keypt 5 miða að hámarki á vildarkjörum.
Unnt er að kaupa vikupassa og helgarpassa í forsölu. Lægra gjald er greitt fyrir unglinga 14 – 17 ára og ekkert fyrir börn 13 ára og yngri. Einnig er hægt að kaupa stúkusæti og hjólhýsastæði með aðgangi að rafmagni í forsölu. Með því að kaupa miða fyrirfram er hægt að spara bæði fé og fyrirhöfn.
Forsölunni lýkur 1.maí 2010 og eftir það hækkar miðaverð. Hver miði sem keyptur er í forsölu gildir einnig sem miði í happdrættispotti Landsmóts og samstarfsaðila. Um hver mánaðarmót verður dregið um veglega vinninga, sem eru til að mynda tveir vikupassar á Landsmót, leikhúsmiðar fyrir tvo í boði VÍS, beisli og DVD diskar frá versluninni LÍFLAND.