Til hamingju Linda Rún

Við sem sitjum í aðalstjórn félagsins óskum Lindu Rún innilega til hamingju með þann frábæra árangur sem hún hefur náð, nú síðast að verða valin íþróttakona Mosfellsbæjar, fremst í hópi allra þeirra einstaklinga  sem íþróttafélögin tilnefndu. 

Þetta er þeim mun sætari sigur þegar þess er minnst að aðeins eru liðin tvö ár síðan Harðarfélaginn Halldór Guðjónsson var kjörinn íþróttamaður Mosfellsbæjar.  Það er ekki algengt að hestaíþróttin fái slíka athygli og viðurkenningu þegar verið er að verðlauna þvert á allar íþróttagreinar.   En nú er brotið blað og æðstu heiðursverðlaun íþróttahreyfingarinnar í Mosfellsbæ hafa ratað til Harðarfélaga af báðum kynjum með árs millibili.  Frábær árangur sem hefur ótvírætt mikil áhrif á okkur öll og hvetur félagsmenn alla til dáða.

Til hamingju Linda Rún, við erum stolt af þér.

Stjórnin