Reiðnámskeið fyrir börn og ungmenni með fötlun
- Nánar
- Flokkur: Fræðslunefnd fatlaðra
- Skrifað þann Föstudagur, janúar 28 2011 17:30
- Skrifað af Super User
Hestamannafélagið Hörður býður upp á 5 vikna reiðnámskeið í reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ fyrir börn og ungmenni með fötlun í samstarfi við Hestamennt ehf.
Fyrir hverja er námskeiðið:
Öll börn og ungmenni sem eiga við einhvers konar fötlun eða skerta getu að stríða vegna sjúkdóma eða af öðrum ástæðum og sem hafa áhuga á að umgangast hesta eða vilja kynnast hestamennsku.
Markmið námskeiðsins:
- Eiga frábæra stund saman í skemmtilegur umhverfi
- Geti umgengist hesta af öryggi og óttaleysi
- Að kynnast hestinum og læra undirstöðuatriði í umhirðu hestsins.
- Auka sjálfstæði og færni í samskiptum við hesta
- Að bæta líkamsvitund
- Að auka samhæfingu handa, fóta og skynfæra.
- Styrkja leiðtogahlutverk í samskiptum við hestinn.
Lagt er áhersla á fjölbreytni og að allir nemendur fái sem mest út úr námskeiðinu eftir þörfum hvers og eins.
Kennslan er í höndum reyndra leiðbeinanda með margra ára reynslu í
reiðkennslu fatlaðra, sjúkraþjálfari verður til taks sem og aðrir
aðstoðarmenn eftir þörfum.
Skráning á námskeiðið er undir "Námskeið, skráning" hér til vinstri