Fundarskýrslur 2020
- Nánar
- Skrifað þann Miðvikudagur, janúar 27 2021 08:09
- Skrifað af Sonja
https://www.hordur.is/index.php/felagid/fundargerdir/85-adalfundur
https://www.hordur.is/index.php/felagid/fundargerdir/85-adalfundur
Minnum á aðalfund félagsins miðvikudaginn 27. janúar kl 20.30.
Fundurinn verður haldinn í reiðhöllinni, en einnig verður boðið upp á fjarfund.
Reiðhöllin verður hólfaskipt með tilliti til sóttvarna, stólar í boði, sér inngangur í hvert sóttvarnarhólf og hvert hólf með sitt salerni. Grímur og spritt á staðnum.
Þeir sem vilja nýta sér fjarfund þurfa að skrá sig sérstaklega með tölvupósti á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. Þar þarf að koma fram nafn, kennitala og netfang. Þeir fá síðan senda slóðina fyrir fjarfundinn.
Skýrslur nefnda, ársreikningurinn og skýrsla stjórnar verða aðgengileg á heimasíðu félagsins og verða því EKKI lesnar upp á fundinum, aðeins opið fyrir fyrirspurnir. Félagsmenn eru því hvattir til að kynna sér skýrslurnar og ársreikninginn á netinu fyrir fundinn.
Stjórn félagsins hvetur félagsmenn til þátttöku, en því miður er ekki hægt að halda aðalfund með almennum hætti vegna sóttvarnarreglna. Fundinn átti að halda 28. október sl., en hefur verið frestað nokkrum sinnum vegna aðstæðna.
Stjórnin.
Vorfjarnám 1. 2. og 3. stigs ÍSÍ hefst mánudaginn 1. feb. nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.
Nám allra stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur. Námið hefur verið afar vinsælt til fjölda ára og þátttakendur komið frá mörgum íþróttagreinum. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda. Þátttökugjald á 1. stig er kr. 34.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin í því verði. Þátttökugjald á 2. stig er kr. 28.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin. Gjaldið á 3. stig er kr. 40.000.- Athugið að þeir nemendur/þjálfarar sem koma frá fyrirmyndarfélögum/-deildum ÍSÍ fá 20% afslátt af námskeiðsgjaldi.
Skráning er rafræn og þarf henni að vera lokið fyrir mánudaginn 1. feb. Rétt til þátttöku á 1. stigi hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi.
Slóð á skráningu á öll stig í sumarfjarnámi þjálfaramenntunar ÍSÍ 2021
http://isi.is/fraedsla/thjalfaramenntun-isi/skraning-i-thjalfaramenntun/
Allar nánari uppl. um fjarnámið og þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 460-1467 & 863-1399 eða á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.