Gæðingafimi á Íslandsmót barna og unglinga
- Nánar
- Skrifað þann Mánudagur, júlí 12 2021 17:34
- Skrifað af Sonja
Á nýafstöðnu Íslandsmóti á Hólum í Hjaltadal voru veittir nýjir farandgripir. Hestamannafélagið Hörður gaf gripi fyrir fyrsta sæti í 250 m skeiði fullorðinsflokki ásamt 150 m skeiði í fullorðins - og ungmennaflokki. Óskum við handhöfum verðlaunanna innilega til hamingju með sigur í þessum greinum.
Kæru félagar, Seinni partinn í dag/í kvöld verður unnið við að slá kantinn við reiðveginn á Tungubakka/flugvalla hringnum og viljum við því biðja ykkur að velja aðra leið í reiðtúrum þann tíma. Á morgun verður rakað saman en það ætti ekki að koma í veg fyrir að hægt sé að ríða hringinn. Eigið frábæran dag 🦄
Að gefnu tilefni skal enn og aftur áréttað að bannað er að hafa lausa hunda í hesthúsahverfinu og á reiðvegum. Nýverið hlaust óhapp af lausagöngu hunds og það vill enginn hafa slíkt á samviskunni.
Virðum reglur, það gengur allt betur þannig.