- Nánar
-
Skrifað þann Þriðjudagur, september 22 2015 08:57
-
Skrifað af Jóna Dís Bragadóttir
Kæru Harðarfélagar!
Nú er lag að mála húsin okkar og snyrta í kringum þau. Hesthúseigendafélagið, Hestamnannafélagið og Mosfellsbær hvetur alla til að taka höndum saman í hverfinu og mála og ditta að húsum, gerðum og fleiru.
Slippfélagið er með litanúmerið á græna litnum okkar og þar fáum við líka afslátt.
Með bestu kveðju
Stjórn Harðar og Hesthúseigendafélagið.
- Nánar
-
Skrifað þann Þriðjudagur, september 15 2015 22:22
-
Skrifað af Oddrún Ýr Sigurðardóttir
Hestamannafélagið Hörður auglýsir eftir reiðkennurum til starfa veturinn 2016. Í umsóknunum skal gerð grein fyrir menntun og reynslu og gott væri að fá tillögur að reiðnámskeiðum.
Umsóknir má senda á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 1 október næskomandi.
- Nánar
-
Skrifað þann Þriðjudagur, september 15 2015 12:31
-
Skrifað af Jóna Dís Bragadóttir
Stjórn Verkefnasjóðs ÍSÍ auglýsir hér með eftir umsóknum um þjálfarastyrki ÍSÍ. Þjálfarastyrkir ÍSÍ eru veittir íþróttaþjálfurum sem sækja sér menntun erlendis í formi námskeiða eða ráðstefna og bæta þekkingu sína í þjálfun, sem mun nýtast íþróttahreyfingunni á Íslandi.
Umsóknarfrestur er til 1. október og er upphæð hvers styrkjar 100.000 krónur. Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum sem finna má á heimasíðu ÍSÍ.
- Nánar
-
Skrifað þann Þriðjudagur, september 15 2015 11:48
-
Skrifað af Jóna Dís Bragadóttir
Halló öll sömul....senn líður að uppskeruhátíð Æskulýðsnefndar sem verður fimmtudaginn 1. okt. næstkomandi.
Það er sem sagt komið að því senda inn árangur ársins. Vinsamlegast sendið okkur árangur knapa ef þið viljið taka þátt í besta knapa ársins. Í barna, unglinga og ungmennaflokk. Með því að senda okkur upplýsingar um árangur allra móta sem þið hafið tekið þátt í á árinu. Vinsamlegast sendið upplýsingar á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 20.09.2015 eftir það verður ekki tekið við gögnum. Takið daginn frá, auglýsing kemur síðar.
Með kveðju nefndin