Tilmæli vegna Íslandsmóts
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Þriðjudagur, júní 23 2009 01:45
- Skrifað af Super User
Harðarfélagar eru vinsamlegast beðnir um að fjarlægja hestakerrur sínar af kerrustæðum félagsins og koma þeim fyrir annars staðar, ef unnt er, meðan á Íslandsmóti stendur eða dagana 25. - 28. júní n.k., svo mótsgestir eigi hægara um vik að komast að með sínar kerrur. Einnig þætti okkur vænt um að allir hjálpist að við að hafa eins snyrtilegt í kringum okkur og hægt er.
Með góðri kveðju,
Mótsstjórn