FEIF Youth Cup 2008

 

Í sumar var ég svo heppin að vera valin í unglingalandsliðið í hestaíþróttum sem keppti á Feif Youth Cup 2008 sem fór fram í Brunnadern í Sviss þar sem heimsmeistaramótið verður næsta sumar.


Image

Við vorum 9 í íslenska liðinu og okkur gekk mjög vel, áttum þátttakendur í úrslitum í flestum greinum.

Image
  

Við fengum hesta að láni og ég fékk mjög skemmtilega fimmgangsmeri sem heitir Idunn vom Rütihof. Mér gekk bara ágætlega sérstaklega í ljósi þess að ég hafði aldrei keppt í fimmgangsgreinum áður. Greinarnar sem ég keppti í voru fimmgangur, slaktaumatölt, þrautabraut og 100m skeið. Best gekk mér í slaktaumatölti en þar var ég í B-úrslitum og svo lenti ég í 8. Sæti í skeiði, 12. Sæti í fimmgangi og 14. Sæti í þrautabraut. Alls voru 72 keppendur frá 12 löndum sem svo var skipt í 6-7 manna alþjóðleg lið. Ég kynntist ekkert smá mörgum skemmtilegum krökkum sem að ég held ennþá sambandi við mörg hver.

Þetta var án efa ein skemmtilegasta lífsreynsla sem ég á nokkurn tíma eftir að upplifa og vil ég þakka Hestamannafélaginu Herði og Eignamiðlun Mosfellsbæ sem styrktu mig til ferðarinnar. Ég vil einnig hvetja krakka sem hafa áhuga á að fara til útlanda að keppa í hestaíþróttum að fylgjast með þegar næst verður auglýst eftir umsóknum.

Takk kærlega fyrir mig J

María Gyða Pétursdóttir