Mót helgarinnar

Harðarmenn athugið. Vegna áskorana hefur mótanefnd ákveðið að koma til móts við félagsmenn og verður keppt í karlaflokk, kvennaflokk og atvinnumannaflokk, með fyrirkomulagi fyrri stigamóta vetrarins,laugardaginn 24.apríl. Nánari dagskrá verður komin inn á netið á fimmtudagskvöld að skráningu lokinni. Taka skal þó fram að áður auglýst Gæðingamót verður haldið, en telur ekki til stiga í eldri flokkum.