Helgarnámskeið með Ásdísi Ósk!

Helgina 25.-26.apríl næstkomandi kemur Ásdís Ósk Elvarsdóttir og verður með helgarnámskeið hjá okkur í Herði!

Ásdís er útskrifaður reiðkennari frá Háskólanum á Hólum og hefur viðamikla reynslu á öllum sviðum hestamennskunnar. Kennslan er í formi einkatíma og er því mjög einstaklingsmiðuð og sniðin að þörfum hvers og eins knapa og hests.

Kennt er bæði laugardag og sunnudag en tímarnir eru tveir 45 mín einkatímar í stóru höllinni. Skráning er hafin og um að gera að hafa hraðar hendur þar sem einungis 8 pláss eru í boði!

Skráning inn á abler.io/shop/hfhordur

Verð: 27.000kr 

669327171_1556715489797166_5551592512289632212_n.jpg