Árshátíð Harðar 2026
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Mánudagur, mars 23 2026 11:45
- Skrifað af Sonja
Árshátíð Harðar fór fram laugardaginn 14.mars síðastliðinn. Hátíðin tókst að venju frábærlega, með góðum mat og dansi sem dunaði inn í nóttina, Harðarfélagar skemmtu sér sérlega vel saman nú sem endranær.
Á árshátíð Harðar eru veittar viðurkenningar fyrir kynbótahross og íþróttafólk félagsins.
Íþróttakona Harðar 2025 er Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir sem vann það einstaka afrek að verða heimsmeistari í slaktaumatölti T2 fyrst Íslendinga á HM síðasta sumar með langhæstu einkunn í úrslitunum og hæstu einkunn heimsmeistaramótsins . Auk þess átti hún góðu gengi að fagna á mótum ársins innanlands, varð meðal annars sigurvegari fjórgangs í Meistaradeildinni. Aðalheiður var í toppsætunum á öllum þeim mótum sem hún keppti á og var einnig tilnefnd til íþróttaknapa og knapa ársins á Uppskeruhátíð hestamanna 2025. Hún á sæti í landsliði Íslands í hestaíþróttum.
Auk þess að standa sig sérlega vel í keppni þá sýndi hún 30 kynbótahross á árinu með frábærum árangri.
Fyrir hönd Aðalheiðar tók Guðrún Astrid Elvarsdóttir við verðlaunum.
Íþróttakarl Harðar 2025 er Kristinn Karl Garðarsson sem hefur verið ötull keppandi fyrir Hörð og náð góðum árangri á fjölda móta, bæði innan félagsins og á opnum mótum.
Hann átti góðu gengi að fagna á Reykjavíkurmeistaramóti WR síðasta vor þar sem hann keppti í fjölda greina sem og á áhugamannamóti Íslands, opnu íþróttamóti í Spretti og Mosfellsbæjarmeistaramóti í Herði ásamt þátttöku í ýmsum fleiri mótum innan félags og utan, bæði íþrótta og gæðingakeppnum. Hann var í liði Nýsmíði í áhugamannadeild Spretts, Samskipadeildinni og náði góðum árangri með liði sínu.
Hæst dæmda kynbótahross sýnt á árinu 2025 ræktað af Harðarfélaga er glæsi hryssan Eik frá Meðalfelli 6 vetra gömul.
Faðir hennar er Sproti frá Innri-Skeljabrekku og móðir Nípa frá Meðalfelli MF: Orri frá Þúfu (móðir hans undan Adam frá Meðalfelli)
Nípa sjálf hlaut 9,05 fyrir hæfileika og 8,70 í aðaleinkun
Ræktendur Eikar eru Sigurbjörg Ólafsdóttir og Sigurþór Gíslason
Hún hlaut fyrir sköpulag 8,22 (hæst 9 fyrir höfuð og háls og herðar) og fyrir hæfileika hlaut hún 8,76 þar sem hæst ber 9 fyrir tölt, brokk, samstarfsvilja, fegurð í reið og fet
Aðaleinkun 8,57
Eik var sýnd á vorsýningu á Hólum af Agnari Þór Magnússyni
Að auki var veitt sérstök viðurkenning fyrir hross ræktað af Harðarfélaga sem náði sérstökum árangri árið 2025.
Hulinn IS2018157298 frá Breiðstöðum
Faðir: Kveikur frá Stangarlæk
Móðir: Díana frá Breiðstöðum
Hæsta dóm hlaut hann á LM 2024 og var það ár verðlaunaður sem hæst dæmda kynbótahross Harðar.
Sköpulag 8,34
Hæfileikar 8,75
Aðaleinkun: 8,61
Hulinn var sýndur af Aðalheiði Önnu Guðjónsdóttur sem tamdi hann og þjálfaði alla tíð.
Saman hófu Hulinn og Aðalheiður sitt fyrsta keppnistímabil á seinasta ári og náðu þeim einstaka árangri að verða heimsmeistarar í slaktaumatölti T2 á HM í Sviss með aðaleinkunina 8,92, urðu þau fyrst allra til að vinna þann titil fyrir hönd Íslendinga.
Sannarlega ótrúlegur árangur hjá svo ungum hesti með litla keppnisreynslu, það lýsir hans upplagi og geðslagi vel.
Óskum Aðalheiði innilega til hamingju með sinn frábæra árangur á árinu og einnig Guðrúnu Astrid Elvarsdóttur og Stefáni Friðrik Jónssyni fyrir að rækta svo magnaðan hest.





