Umsóknir um beit á vegum Harðar – til upplýsingar
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Miðvikudagur, mars 18 2026 20:16
- Skrifað af Sonja
Umsóknir um beit á vegum Harðar – til upplýsingar
Mosfellsbær vinnur um þessar mundir að því að endurnýja samning við hestamannafélagið Hörð um nýtingu beitarhólfa innan bæjarmarkanna, kortleggja hólfin betur og uppfæra reglur.
Af þeim sökum verður einhver töf á að við getum opnað fyrir umsóknir um beit, en það verður vonandi hægt að gera innan fárra vikna. Mosfellsbær vill hafa nýjan samning í höfn áður en umsóknarferlið hefst.
Kveðja, Stjórnin

