Veitingasala í reiðhöllinni!
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Mánudagur, mars 02 2026 14:43
- Skrifað af Sonja
Okkur vantar áhugasaman og ábyrgan aðila sem er til í að sjá um að reka sjoppu/veitingasölu hjá okkur á mótum sem eru framundan.
Hestamannafélagið leggur til aðstöðu, viðkomandi kemur með söluvörur, selur og hagnast á rekstrinum sjálfur.
Hugmynd að varningi eru td samlokur, nammi, gos og kaffi eða bara það sem hugurinn girnist
Samlokugrill og vöfflujárn á staðnum. Einnig ísskápur og uppþvottavél auk kaffikönnu.
Þær dagsetningar sem um ræðir eru:
8.mars Meistaradeild æskunnar (tímasetning ekki alveg negld, enn byrjar líklega upp úr 13).
13.3. Meistaradeild Ungmenna (tímasetning ekki alveg negld, enn byrjar líklega upp úr 16)
14.3. Vetrarmót Harðar (byrjar kl 13)
Áhugasamir hafi samband við Sonju This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir frekari upplýsingar eða umsókn um verkið.

