Reiðhallarleigu

Stjórn Harðar hefur ákveðið að rýmka til prufu reglur um leigu á hálfri reiðhöll til einkakennslu.

Um er að ræða leigu um helgar þar sem boðið verður nú upp á að leigja höllina fyrir klukkan 12  annarsvegar og eftir klukkan 18 hins vegar.  Var áður fyrir klukkan 9 og eftir 18.

Enn verður í boði að leigja hálfa höll virka daga fyrir klukkan 14.

Hafa skal í huga að allir viðburðir á vegum félagsins og námskeiðahald hefur algeran forgang og leiga til einstaklinga og kennara er gerð með þeim formerkjum að viðkomandi gætu þurft að víkja komi upp sú staða fyrirvaralítið.

Sjá hér gjaldskrá og uppfærða tíma fyrir leigu  https://hordur.is/index.php/felagid/gjaldskra