Athugasemdir í skipulagsgátt, vegna fyrirhugaðrar stækkunar Hlíðavallar
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Mánudagur, febrúar 09 2026 11:20
- Skrifað af Sonja
Kæru Harðafélagar
Nú ríður á að við leggjum öll hönd á plóginn og leggjum inn athugasemdir í skipulagsgátt, vegna fyrirhugaðrar stækkunar Hlíðavallar til austurs. Þessi tillaga að breytingum og stækkun dregur verulega úr öryggi okkar hestamann á þessari reiðleið út á Blikastaðanes. Hér fyrir neðan er hugmynd af umsögn sem hægt er að nota að hluta eða að öllu leyti og/eða setja inn ykkar eigin athugasemdir.
Linkur á málið og gögn um það á skipulagsgátt er hér: Stækkun og endurhönnun íþróttasvæðis að austurhluta Hlíðavallar
Það þarf að skruna svolítið niður vefsíðuna og finna þennan hnapp til að leggja inn athugasemdir (hægt að lesa líka það sem kemur inn jafn óðum):
Við hvetjum ykkur öll að leggja inn athugasemdir og tryggja þannig styrka rödd okkar Harðarfélaga í þessu mikilvæga máli.
Kveðja
Jón Geir Sigurbjörnsson
Formaður Harðar
Hugmynd að umsögn:
Athugasemd vegna stækkunar Hlíðavallar – áhersla á öryggi
Ég geri alvarlegar athugasemdir við fyrirliggjandi tillögu um stækkun Hlíðavallar til austurs, þar sem hún gengur gegn grundvallar öryggi þeirra sem nýta reiðveginn sem liggur um svæðið.
Reiðvegurinn er hluti af íþróttamannvirkjum hestamanna og er í dag ein fjölfarnasta reiðleið Mosfellsbæjar. Leiðin er notuð allt árið af börnum, ungmennum, fullorðnum, eldri borgurum, nýliðum og reyndum reiðmönnum, bæði til þjálfunar, tamninga, útreiða og sem tenging milli hesthúsahverfa og annarra sveitarfélaga.
Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir að golfbrautir liggi beggja vegna reiðvegarins á löngum kafla. Þetta leiðir til:
- aukinnar hættu vegna golfbolta, högghljóða og ófyrirsjáanlegra aðstæðna,
- fjölgunar þverana þar sem golfumferð fer yfir reiðveg,
- aukins áreitis sem getur valdið ótta og viðbragða hjá hestum,
- almennt verri aðstæðna fyrir örugga ríðandi umferð.
Þrátt fyrir að markmið skipulagsins séu sögð vera aukið öryggi er ekki sýnt fram á hvernig öryggi hestamanna sé tryggt. Þvert á móti er ljóst að tillagan eykur hættu á slysum og rýrir gæði reiðleiðarinnar verulega.
Það liggur fyrir raunhæfur og framkvæmanlegur valkostur sem felst í því að færa reiðveginn norður fyrir áætlaða stækkun vallarins. Slík lausn:
- aðskilur ólíkar íþróttir með skýrum hætti,
- dregur verulega úr slysahættu,
- er í samræmi við áherslur um öryggi, samlegð og útivist fyrir alla,
- er í takt við fyrri tillögur og umsagnir hestamanna.
Ég hvet Mosfellsbæ eindregið til að endurskoða tillöguna með öryggi ríðandi umferðar að leiðarljósi og vinna málið áfram í raunverulegu samráði við hestamenn.
Útivistarsvæðið á að vera fyrir alla – en það verður það ekki með þessum breytingum sem eru á kostnað öryggis barna og annarra sem stunda hestamennsku.
Virðingarfyllst,
[nafn]
[félagsmaður / iðkandi / foreldri reiðskólanema]


