Æfingamót milli 17-19 mánudaginn næsta 9.febrúar!
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Föstudagur, febrúar 06 2026 09:19
- Skrifað af Sonja
Ætlað krökkum í yngri flokkum, undir 21 árs.
ATH. Stóra höllin verður LOKUÐ á þessum tíma en Blíðubakkahöllin verður OPIN á þessum tíma fyrir félagsmenn svo þetta ætti ekki að valda miklum óþægindum ![]()
Næsta mánudag verður haldið stutt æfingamót fyrir nemendur á keppnisnámskeiði Harðar. Þetta er liður í námskeiðinu sem stuðlar að því að auka á keppnisreynslu nemenda! Við viljum bjóða krökkum í félaginu sem eru ekki á keppnisnámskeiðinu að vera með gegn vægu gjaldi ![]()
Skráning fyrir nemendur á keppnisnámskeiðinu er innifalið í námskeiðinu! Þessi skráning er ætluð þeim sem eru EKKI skráðir á keppnisnámskeiðið!
Ath. einungis ein skráning á mann! (Einn hestur og knapi (par) í eina grein)
2-3 saman inn á, tveir dómarar dæma, gefa tölur og umsögn!
Hægt að skrá í fjórgang (V2), fimmgang (F2) eða tölt (T3). Verð fyrir knapa ekki á keppnisnámskeiðinu: 1000kr
Ráslistar koma inn á abler á sunnudaginn!
Skráning inn á abler.io/shop/hfhordur
Senda nafn á knapa, hesti, keppnisgrein og upp á hvora hönd knapi ætlar að ríða fyrir hádegi sunnudaginn 8.febrúar! Senda á Thelmu Rut á facebook eða This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. ![]()

