🐴Kynbótaárið 2025 og hvað er framundan 2026 🐴
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Þriðjudagur, janúar 06 2026 09:24
- Skrifað af Sonja
Þorvaldur Kristjánsson, hrossaræktarráðunautur, verður með fyrirlestur hjá hestamannafélaginu Herði og fer yfir liðið sýningarár kynbótahrossa og fer yfir það sem er á döfinni á komandi ári.
Harðarból, félagsheimili Harðar, Varmárbakka
Fimmtudagurinn 29. janúar klukkan 20:00
Kaffi og léttar veitingar verða í boði, svo við hvetjum alla til að mæta, njóta góðs félagsskapar og fræðast!
Ekki láta þetta framhjá þér fara – allir hestamenn og áhugasamir um hrossarækt eru hjartanlega velkomnir. Deilið endilega til þeirra sem gætu haft áhuga! 🐴
🌟 Sjáumst í Harðarbóli! 🌟
Kveðja
Kynbótanefnd Hestamannafélagsins Harðar
EINNIG:
Kynbótaferð Harðar verður farin laugardaginn 28. feb
Nánar um ferðina auglýst síðar hvert verður farið og einnig með skráningu og greiðslu fyrir þátttöku

