Námskeið um dýraatferli í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinum
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Miðvikudagur, febrúar 26 2025 11:54
- Skrifað af Sonja
Dýraatferlisfræðingurinn Eva Bertilsson kemur í heimsókn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn 10. til 14. mars nk. Hún er dýraþjálfari með margra ára reynslu af því að vinna með dýr, auk þess að sinna kennslu og veita ráðgjöf um dýraþjálfun til almennings og þeirra sem vinna með dýr í sínum störfum. Hún notast við jákvæðar þjálfunaraðferðir með það að leiðarljósi að auka lífsgæði dýranna sem gæti nýst fólki í þjálfun með hestum.
Eva ætlar að miðla kunnáttu sinni til starfsfólks sem og almennings í heimsókn sinni. Fyrstu þrjá dagana ætlar starfsfólk garðsins að sækja í viskubrunn hennar. Vonir eru bundnar við að heimsókn hennar og fróðleikur hafi jákvæðar afleiðingar í för með sér fyrir starfsfólk Húsdýragarðsins og dýrin sem þar búa. Aðferðir hennar geta hjálpað starfsfólki að efla tengsl við dýrin og fært þeim kunnáttu til að þjálfa þau á jákvæðan hátt fyrir t.d. dýralæknaskoðanir og eftir þörfum.
Unnið verður með mörgum dýrum í garðinum (meðal annars hestum) og hægt að yfirfæra aðferðir tengdri jákvæðri styrkingu á hestaþjálfun.
Fimmtudaginn 13.mars gefst þeim sem vinna með dýr að atvinnu tækifæri að læra af henni og föstudaginn 14. mars ætlum við að bjóða almenningi upp á að skyggnast bak við tjöldin í þjálfuninni.
Takmarkaður fjöldi kemst að báða dagana.
Dagskrá 13.mars fyrir fólk sem vinnur með dýr í sínum störfum.
- 12:30 til 13:30 Fyrirlestur Evu um þjálfun dýra og nýtingu á þeirri þekkingu. Léttar veitingar á meðan á fyrirlestri stendur.
- 13:30 til 16:00 Unnið með dýrum garðsins og þær aðferðir sem Eva leggur til prófaðar.
- 16:00 til 17:00 Umræður og kaffi.
- Verð:15.000 krónur og áhugasöm skrá sig og/eða fá frekari upplýsingar með því að senda póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..
Dagskrá 14. mars. Almenningur (10 ára aldurstakmark)
- 15:00 til 17:30 Þátttakendur fylgja Evu og starfsfólki garðsins til dýranna og fá innsýn og ítarlegar upplýsingar um það sem starfsfólk garðsins hefur lært hjá Evu.
- Léttar veitingar í boði í lokin og spjall um þjálfunina.
- Verð: 6.000 krónur og áhugasöm skrá sig og/eða fá frekari upplýsingar með því að senda póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..
Starfsfólk garðsins notar nú þegar jákvæðar og fjölbreyttar aðferðir við þjálfun dýranna og eru spennt fyrir heimsókn Evu og þeim aðferðum sem hún mun bæta við í verkfærakistu þeirra.