Framkvæmdir í reiðhöll - undanþágur
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Laugardagur, mars 28 2020 08:55
- Skrifað af Sonja
Framkvæmdir í reiðhöll – undanþágur
Meðan á lokun hallarinnar stendur, verður sett upp vatnsúðunarkerfi. Hugað verði að bættri lýsingu og öðrum viðhaldsþáttum.
Óskir hafa borist um undanþágu á æfingum í reiðhöllinni, en við lokuðum höllinni á grundvelli tilmæla frá sóttvarnarlækni, þ.e. að höllin falli undir íþróttamannvirki sem er búið að fyrirskipa að beri loka.
Það er því ekki á okkar valdi að veita undanþágur frá því banni. Við beinum því öllum beiðnum um undanþágu til Almannavarna/sóttvarnarlæknis.
Stjórnin