Kirkjureið
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Þriðjudagur, maí 28 2019 11:06
- Skrifað af Sonja
Hin árlega kirkjureið okkar Harðarmanna var farin í blíðskaparveðri sl sunnudag. Sveitin blómstraði sem aldrei fyrr. Margrét Dögg var með frábæra hugvekju sem snerti alla viðstadda og karlakórinn Stefnir söng. Eftir messu var boðið upp á kaffiveitingar í Harðarbóli, heitt súkkulaði og nýbakaðar vöfflur.