Reiðnámskeið með Trausta Þór
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Miðvikudagur, febrúar 22 2017 15:03
- Skrifað af Oddrún Ýr Sigurðardóttir
Trausti Þór Guðmundsson reiðkennari mun halda námskeið fyrir í Herði helgina 24 – 26 mars 2017.
Töltfimi (Tölt in Harmony) er ekki eitthvað einangrað fyrirbæri eða keppnisgrein. TIH er einfaldlega nafn á ákveðinni „Fílósófíu“ eða aðferðafræði sem hestamaður getur valið sér og sínum reiðhesti/keppnishesti, stefni hugur hans til framfara. Aðferðafræðin styðst við hin „klassísku þjálfunarstig“ og felur þannig í sér að gott samband manns og hests verði, og að reiðmaðurinn nái stjórn á andlegu sem og líkamlegu jafnvægi, sem og orku og orkuflæði hestsins.
- Niðurstaðan hvað knapann varðar getur orðið:
- Aukinn skylningur
- Yfirvegaðri og einbeittari reiðmennska
- Nákvæmari og léttari ábendingar
- Betri stjórn í gegnum sætið
- Tök á kerfisbundinni uppbyggingu hests og knapa
- Niðurstaðan hvað hestinn varðar getur orðið:
- Betri líðan og andlegt jafnvægi
- Hreinni gangtegundir á öllum hraða
- Aukin mýkt og fjaðurmagn
- Aukinn skilningur og betra gegnumflæði ábendinga
- Aukin virðing fyrir þjálfara
Námskeiðið kostar 25.000 krónur og lágmarksþátttaka eru 10 nemendur.
Skráning er á eftirfarandi slóð: http://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add
Kveðja
Fræðslunefnd Harðar