FRÁBÆRT HRÍMNISMÓT VAR HALDIÐ Í GÆR Í HERÐI
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Föstudagur, maí 06 2016 13:03
- Skrifað af Jóna Dís Bragadóttir
Litla Hrímnisútimótið okkar breyttist í 15 klst. törn, þar sem um 140 skráningar voru á mótinu. Mótið tókst mjög vel þrátt fyrir mikið rok. Þegar líða tók á daginn var síðan komið hið "rómaða" logn á Harðarsvæðinu. Mótanefndin þakkar Hrímni fyrir stuðninginn við mótið og þau frábæru verðlaun sem þau gáfu. Einnig viljum við þakka knöpum og aðstandendum þeirra fyrir komuna og jafnframt öllum þeim sem aðstoðuðu á mótinu á einn eða annan hátt.
Hlökkum til að sjá ykkur á íþróttamótinu hjá okkur eftir tvær vikur.