FÁKSMENN KOMA Í HEIMSÓKN - KAFFIHLAÐBORÐ Í REIÐHÖLLINNI

"HLÉGARÐSREIÐ" LAUGARDAGINN 7.MAÍ - KAFFIHLAÐBORÐ

Á laugardaginn er svokölluð "HLÉGARÐSREIÐ" en þá koma Fáksmenn ríðandi til okkar í Hörð. Frábær hefð og við fjölmennum auðvitað eins og venjulega.

Kaffihlaðborðið verður í reiðhöllinni. Allir velkomnir, bæði keyrandi og ríðandi.

Hvetjum alla til að koma og fá sér kaffi og með'í.

Við ríðum á móti Fáksmönnum og lagt verður af stað kl. 13.15 úr Naflanum.

Ferðanefnd og fjáröflunarnefnd