Sumarnámskeið fyrir unglinga sem eiga hesta!
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Föstudagur, maí 29 2015 12:19
- Skrifað af Oddrún Ýr Sigurðardóttir
Í sumar verður í boði skemmtilegt námskeið fyrir unglinga sem eiga eða hafa aðgang að hesti og treysta sér til útreiða.
Aldur 12 – 16 ára
Farið verður um víðan völl en kennslan fer mest fram í löngum útreiðatúrum. Við sundríðum, æfum stökk í Rauðhólum, förum í ratleik og endum seinasta skiptið á miðnæturreið í kvöldsólinni!:)
Unglingarnir fá svo kvöldsnarl, ýmist þegar áð er, eða upp í hesthúsi!
Markmiðið er að halda gleðinni, bæði hjá knapa og hesti í gegnum leik og lærdóm!
Hér fá unglingarnir gott tækifæri til þess að læra að ríða saman í hóp og taka tillit til hvors annars!
Hámarksfjöldi per námskeið er: 10
Dagsetningar sem verða í boði eru eftirfarandi:
14 júní - 20 júní (kennt frá kl 19 – 22)
28 júni - 3 júlí (kennt frá kl 19 – 22)
12 júlí - 17 júlí (kennt frá kl 16 – 19)
Fyrsti hittingur er á sunnudegi, hrossunum komið fyrir og farið yfir fyrirkomulag námskeiðsins. Seinasta skiptið er á föstudegskvöldi og þá er endað á miðnæturreið!!
Verð 35.000 kr
Innifalið er hesthúspláss í félagshesthúsi Fáks, hey, spænir og gjafir. Einnig er boðið upp á kvöldsnarl.
Tekið er á móti skráningum á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða í síma 865 4239
Reiðkennari er Karen Woodrow ásamt gestakennurum