FERÐ Í FÁKASEL 13.FEB. N.K.

Ferð í Fákasel

með æskulýðsnefnd Harðar

Föstudaginn 13. feb. (omg það er Friday the 13th) ætlum við að skella okkur í magnaða skemmtiferð. Stefnan er tekin austur fyrir fjall (auðvitað hvert annað) í Fákasel, hestaleikhús.

Farið verður frá reiðhöll Harðar stundvíslega kl. 16:30 og er áætluð heimkoma um kl. 20:15

Verðið er 2000 kr. fyrir börn, unglinga og ungmenni en 3500 kr. fyrir fullorðna.

Innifalið er, far fram og til baka, skoða hesthúsið með Guðmari, hamborgara hlaðborð og auðvitað miði á sýninguna.

(Síðar um kvöldið verður hægt að taka æfingu fyrir smalamótið sem fyrirhugað er á Laugardeginum.)

Til að skrá sig í ferðina þarf að senda tölvupóst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. en skráningu líkur miðvikudaginn 11. feb. Muna að setja þarf nafn þeirra sem mæta og greiða við brottför.

Vonumst til að sjá sem flesta, með kveðju æskulýðsnefnd Harðar