Lífstölt 2015

Kæru félagskonur.
Kvennatöltmótið okkar, LÍFStöltið, verður nú haldið fimmta árið í röð þann 22. mars nk. Öflugur hópur kvenna úr okkar röðum hefur komið að mótinu á einn eða annan hátt og skipað LÍFStöltsnefnd.

 

Síðastliðin fjögur ár hefur okkur tekist að skapa frábæran viðburð og styrkja LÍF, styrktarfélag Kvennadeildar Landspítalans um tæpar fimm milljónir, nokkuð sem við getum verið afar stoltar af. Nú er komið að endurnýjun í þessari góðu nefnd og viljum við óska eftir og skora á kraftmiklar og áhugasamar konur til starfa í nefndinni.
Þetta er ört stækkandi viðburður og frábært framtak sem gaman er að taka þátt í og láta gott af sér leiða.
Áhugasamar hafi samband við Þórdísi Þorleifs gegnum tölvupóst;
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..