FUNDUR MEÐ ÖLLUM FORMÖNNUM NEFNDA Í HERÐI

Til formanna nefnda í Hestamannafélaginu Herði.

Þriðjudaginn 18.nóvember n.k. kl.18.45 boðar stjórn Hestamannafélagsins Harðar formenn nefnda á sameiginlegan fund í Harðarbóli. Boðið verður uppá pítsu. Æskilegt er að formenn og/eða staðgenglar formanna mæti á fundinn.

Dagskrá fundarins:

  1. Farið verður yfir sarfslýsingar fyrir nefndir félagsins.
  2. Formenn samræma dagsetningar á uppákomum vetrarins.
  3. Formenn nefnda kynna starfið á komandi vetri.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

Nefndarkvöld verður haldið 28.nóvember n.k. kl.19.00 í Harðarbóli. Þangað er öllum nefndum boðið sem hafa starfað fyrir félagið sl. ár og einnig þeim sem eiga eftir að starfa fyrir félagið næsta ár.

Maturinn er í boði Hestamannafélagsins Harðar. Hægt verður að kaupa veitingar á kostnaðarverði.

Við viljum biðja formenn um að tilkynna þátttöku nefndarmanna og annarra sjálfboðaliða sem starfað hafa fyrir nefndina ekki seinna en miðvikudaginn 26.nóvember n.k .á  This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Stjórn Hestamannafélagsins Harðar