Frumtamninganámskeið með Robba

Hestamannafélagið Hörður og Róbert Petersen reiðkennari verða með frumtamninganámskeið sem hefst mánudaginn 6. október nk. Hver þátttakandi kemur með sitt tryppi og farið verður í gegnum helstu þætti frumtamningar s.s. atferli hestsins, leiðtogahlutverk, fortamningu á tryppi, undirbúning fyrir frumtamningu og frumtamningu.



Námskeiðið spannar fjórar vikur og verður á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum.
Verð 35.000. Kennt verður í 4-5 manna hópum en bóklegir tímar verða sameiginlegir. Nemendur fylgjast með hvor öðrum og læra þannig á mismunandi hestgerðir og mismunandi aðferðir við for- og frumtamningu. 

Harðarfélagar ganga fyrir en námskeiðið er öllum opið.

Fræðslunefnd áskilur sér þann rétt að fella námskeiðið niður ef ekki næst næg þátttaka


Skráning í gegnum Sportfeng (velja skráningarkerfi):
http://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add

1. Velja námskeið. 
2. Velja hestamannafélag (Hörður).
3. Skrá kennitölu þátttakanda – (Ef kennitala er ekki í félagaskrá þarf að fara inn á hordur.is eða síðu annars hestamannafélags o
g sækja um aðild).
4. Velja atburð.
5. Setja í körfu. 
6. Velja greiðslufyrirkomulag: Greiðslukort eða millifærsla. Skráning telst ekki gild nema greiðsla hafi borist.

Fræðslunefnd Harðar.