Stable quis 2014

Eftir mikla eftirspurn og þrýsting munum við halda "Stable quis" (spurningakeppni hestamannafélaganna) í haust, keppnin sló alveg í gegn í hittifyrra en ekki náðist að setja hana upp sl haust vegna anna. 
 
Sigurvegarar ársins 2012 voru Fáksmenn enda með eðal lið sem skemmti áhorfendum fyrir allan peninginn !
 
Nú óskum við eftir umsóknum frá hestamannafélögum sem hafa áhuga á að senda 3 félagsmenn sína til að keppa í október - nóvember, en stefnt er að því að keppa á fimmtudagskvöldum í Harðarbóli í Mosfellsbæ.

Dregið verður um hvaða félög etja kappi og fer auðvitað allt eftir því hve margir vilja keppa hve margir fimmtudagar fara í þetta.

Farandbikar er í boði en hann prýðir nú stásstofur Fáks.

Sendið mér uppl um nöfn þeirra þriggja sem munu keppa fyrir ykkar hönd og nafn félags fyrir 1.október á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

 

Gaman saman!
 
Nefndin.